Réttur - 01.02.1927, Page 48
ðo FRÁ ÓBYGÐÚM [Rjettur
landslag þá orðiö að mestu eins og það er nú, en í síðara
skifti eftir ísöld, í þann mund sern Hallmundarhraun og
Geitlandshraun runnu og Heiðingjar gusu. Krákur og Blá-
fell hygg ég, að séu eldíjallarústir.
Efri myndin, Md. 1, er hugsaður þverskurður gegnum Eiríks-
jökul og Arnarvatnsheiði að Arnarvatni. Sýnir hún skipun jarð-
laga og sköpun lands, eins og ég hygg hana gerst hafa. Punkta-
línurnar merkja hæð landsins í öndverðu, en heilu línurnar hæð
þess nú. Örvamar sýna sigið.
Neðri myndin, Md: 2, er hugsaður þverskurður gegnum Kjöl,
og stalla Hofs- og Langjökuls. Sýnir hún og jarðlagaskipun á
Kili og á að skýra hugmynd mína um sköpun hans. Línan a-d
merkir hæð landsins í upphafi. Um b og c hefir landið sprung-
ið og svæðið þar á milli sigið niður að b i og c 1 Jöklar og vatn
hafa síðan jafnað brotsárið og numið allmikið ofan af stöllum
jöklanna, einkum stalla Langjökuls.