Réttur - 01.02.1927, Side 49
Júdas Iskaríot.
Ekki væri rjett að segja, að Júdas ískaríot væri óþekt
persóna. Hvar sem nafn Jesú Krists þekkist, þar má segja,
að nafn Júdasar þekkist einnig. Nöfn þeirra fylgjast að,
eins og Ijósið og skugginn.
Það eru drottinsvik Júdasar, sein halda nafni hans á
lofti. Einn atburður í lífi hans hefir ræmt hann, og veitir
hann nokkra Jiekkingu á manninum, en með fullum rjetti
má þó segja, að við þekkjum Júdas fremur lítið. Okkur
hefir lítið verið um hann sagt, að undanskildu þessu eina,
og lítið mun hafa verið um það hirt, að reyna að gera sjer
grein fyrir því, hvað það muni hafa verið í eðli hans og
umhverfi, sem hratt honum út á hina örlagaþrungnu svika-
braut. Jeg vildi í erindi þessu gera ofurlitla grein fyrir
því, hvernig Júdas hefir komið nrjer fyrir sjónir, þegar jeg
hefi dregið saman í eitt og athugað alt það, sem okkur er
um hann sagt.
I.
Saga Júdasar, sú er nýjatestamentið flytur, er þessi:
Hann er lærisveinn Jesú Krists og einn í liópi þeirra
tólf, sem Jesú eru nánastir. f Jóhannesar guðspjalli er þess
ennfremur getið, að hann hafi haft fjármál flokksins ineð
höndum og það með, að honum hafi verið á móti skapi
bruðlun á fjármunum og það gefið í skyn, að sú spar-
semdarhneigð hans hafi verið af þeim rótum runnin, að
hann hafi stolið úr pyngjunni. Meira er okkur ekki sagt
4*