Réttur - 01.02.1927, Qupperneq 61
Rjettur]
KOMMÚNISMINN OG BÆNDUR
63
Fyrir ófriðinn mikla var uppgangur auðvaldsins hjer á
landi svo mikill að undrum sætti. Allir atvinnuvegir ukust
og margfölduðust. Landsmenn áttu aðeins eina ósk, aö
verða sjálfstæð þjóð og njóta allrar þessarar dýrðar. Svo
kemur stríðið og að því loknu tekur auðvaldinu að hnigna
allsstaðar í Evrópu, og íslensku atvinnuvegirnir, sem eru
eins og dropi í hafinu, magnlausir í öiduróti heimsvið-
skiftanna, fylgjast auðvitað með. íslendingar framleiða
mestmegnis fyrir erlendan markað, bæði bændur og út-
gerðarmenn, en markaðurinn hefir gerst ótryggur vegna
hinnar almennu hnignunar og þverrandi kaupgetu við-
skiftavinanna erlendis. Bæði lijer og erlendis hefir hnign-
unin liaft í för með sjer, að auðvaldsliðið hefir þjappað
sjer í þjettari fylkitigar en nokkru sinni áður, og lætur nú
einskis ófreistað til að halda velli á kostnað hinna vinn-
andi stjetta.
Hvaða áhrif hefir þetta á kjör bændastjettarinnar?
Fróðlegt væri að bera saman kjör landbúnaðarins fyrir
stríðið og nú. Það er allerfitt að gera sjer grein fyrir hlut-
deild bænda í tekjum og neyslu þjóðarinnar, þar sem ekki
eru til nema mjög ófuflkomnar skýrslur til að vinna úr.
Hið eina, sem völ er á til leiðbeiningar, eru upplýsingar
Hagstofunnar um útflutning og innflutning. Samkvæmt
þeim er liægt að reikna út hlutdeild landbúnaðarins í út-
flutningnum, og af henni má nokkuð ráða, þegar þess er
gætt, að mest er framleitt fyrir erlendan markað. Af land-
búnaðarafurðum er kjötið aðalvaran, og af sjávarafurð-
um fiskurinn, hvorstveggja er nokkuð neytt í landinu
sjálfu og mun það nokkurnveginn vega salt. Læt jeg hjer
fylgja tölur, sem sýna hve margir hundraðshlutar land-
búnaðarafurðirnar voru af útfluttum vörum, miðað við
verð, nokkur ár fyrir og eftir stríð. Allar tölurnar hefur
Hagstofan sjálf reiknað út nema tvær síðustu sem fást með
því að leggja saman verð þeirra útflutningsvara, senr telja
má til landbúnaðarafurða. (Kjöt, lifandi skepnur, tóvöru-
efni, skinn, hár, feiti, mjólkurafurðir). Tölurnar síðustu