Réttur - 01.02.1927, Qupperneq 66
68 KOMMÚNISMINN OG BÆNDUR [Rjettur
úr sveitunum og fjargviðrast í blöðum um þetta dauðans
öfugstreymi í fólkinu. Ætli það væri ekki fróðiegra að
spyrja einhvern sveitamanninn, sem flytst til kaupstaðar-
ins, hversvegna hann hafi flutst búferlum.
ísland er gott land, en ræktun þess í mesta ólagi, dæma-
fárri niðurníðslu. Rányrkjan og kotungsskapurinn eru ein-*
kenni íslensks landbúnaðar. í I. hluta greinar þessarar er
stuttlega rætt um auðvaldstálmanirnar fyrir ræktun lands-
ins. Tilgangurinn með landbúnaðarlögjöf er að verjast
þessuin tálmunmn og tempra stjórnleysi frjálsrar sam-
keppni. En í framkvæmdinni verður hún í aðalatriðum til
einskis annars en að tryggja og lögfesta gróða lands-
drottna, senr von er, þar sem ríkjandi stjettin fer með lög-
gjafarvaldið. Það eru landsdrottnar og samherjar þeirra
í öðrum atvinnugreinum, sem lögin seinja. Svo er um á-
búðarlöggjöfina frá 1844, sem reyndar er orðin svo úrelt,
að hlægilegt er að búa við hana enn í dag. 52% allra
bænda í landinu eru leiguliðar samkvæmt síðustu upplýs-
ingum (Jarðamatinu). Síðan hefir sjálfseignarbændum að
ölluin líkindum fækkað töluvert. Eins og um hnútana er
búið er engin von til þess, að leiguliðar komi upp sæmileg-
um híbýlum á jörðuin sínum eða rækti landið. Hvenær
sem er eiga þeir útbyggingu yfir höfði sjer og þegar þeir
flytja burt af jörðunum, hafa þeir enga tryggingu fyrir
því að hús þeirra verði keypt, og ef þeir neyðast til að rífa
þau, eru þau þeim altaf lítils virði og venjulega einskis-
virði, t. d. steinhús. Það er líka harla sjaldgæft, að leigu-
liði geri jörð þeirri, er hann býr á, til góða svo um muni,
sem von er. Hann hefir enga tryggingu fyrir afnotum
jarðabótanna, og ef hann flytur, er bannað með lögum að
meta þær hærra en svo, að þær verði »12 sinnum hærri en
hækkun eftirgjaldsins«. Þetta getur varla orðið ineira en
hálfvirði, því eftir þessu fær jarðeigandi 8—9% af eign-
inni, sem er meira en forvextir af dýrustu víxlum. En í
reyndinni verður matið miklu minna og venjulega er jarða-
bótin leiguliða sama og einskisvirði, er hann flytur. Mats-