Réttur - 01.02.1927, Page 71
Rjettur] BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN
73
bak við hinn vinstri; var sá aðalkraftur byltingarinnar og
hafði að foringja aldavin Sun-Yat-Sen’s Wang-Ching-
Wei, er var og foringi ílokksins, því vinstri armurinn var
þar yfirsterkari. Milliflokkur stóð milli arma þessara og
var foringi hans Tschang-Kai-Shek; yfirhershöfðingi Suð-
ur-hersins. Óttaðist maður sá að hinir vinstri yrðu honum
ofjarl, er fram í sækti, og gerði því samtök við hægri arm-
inn í mars 1926 og tók með hervaldi yfirráðin í Kanton.
Knúði hann nú Wang-Ching-Wei til að fara í útlegð. Enn-
fremur neyddi hann alla kommúnista til að sleppa ábyrgð-
arstöðum í flokknum. Brátt sá hann þó að kraftinn myndi
þrjóta og leitaði sætta við vinstri-menn. Var haldinn sam-
eiginlegur fundur með flokksstjórnum kommúnista og
Kuo-Min-Tang í maí 1926 og sættum komið á. Slakaöi
þá Tschang-Kai-Shek til um stundarsakir og var nú alt
með kyrrum kjörum innan flokksins um hríð.
Er hausta tók og hægara varð um herferðir hófst síðan
framsókn byltingarhersins frá Kanton, sú, er nú er svo
fræg orðin. Unnu byltingarmenn þegar í október sigra
mikla og tóku, 9. okt., Wnchang, hina miklu iðnaðarborg
við Yang-Tshe-Kiang-ána (Blá-á). Við þessa sigra tók og
að dofna mótspyrna ýmsra sjálfstæðra hershöfðingja og
gengu margir í lið með byltingarmönnum, er þeir sáu að
þeinr veitti betur. Tryggastur þeirra er þetta haust gengu
í Kuo-Min-Tang hefur orðið Feng-Yu-Hsiang, er stýrir
her norðvestan til í Kína. — Fjell nú brátt hver borgin á
fætur annari í hendur byltingarmanna, oft eftir blóðugar
orustur. 5. nóv. var Kiukiang tekin, 8. nóv. Nantchang,
höfuðborgin í Kiangsi, 2. des. Futchau, höfuðborg Fúkíu,
18. febr. Hangchow, höfuðborgin í Tschekiang. Óx nú
byltingarmönnum ásmegin við sigra þessa, en verklýðs-
og bændahreyfingin tók þó einkum miklum framförum.
Sjerstaklega þráði nú verkalýðurinn í Shanghai, mestu
iðnaðar- og hafnarborg Kína, frelsið af oki afturhaldsins.
Hafði hann í nóvemberlok gert uppreisnartilraun, er bæld
var niður nreð valdi. En nú höfðu afturhaldsherirnir verið