Réttur - 01.02.1927, Side 74
7G BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN [Rjettui-
aðar- og verkamanna ennþá ríkari við flutning þennan.
Þótti nú Tschang-Kai-Shek súrt í brotið, er hann fjekk
eigi vilja sinn fram. Hafði hann alt frá því norðurförin
hófst, ráðið mestu sjálfur sem yfirhershöfðingi og ekkert
skeytt boðum flokksstjórnarinnar. Hún hafði t. d. fvrir-
skipað að Wuhan skylcli vera stjórnarsetur frá 1. janúar,
en hann hafði gert Nantchang að stjórnarsetri. Sjálfur
sat hann í 6 mikilvægustu embættunum og rjeð því öllu
næstum sem alræðismaður.
Byltingarmenn sáu brátt að alræði Tschang-Kai-Shek’s
var að verða hættulegt og á flokksstjórnarfundi í mars,
var hann sviftur öllum embættum sínum, nema yfirhers-
höfðingjastarfinu, Wang-Ching-Wei var kallaður aftur og
flokksstjórnin tók nú við völdum. Fyrst beygði Tschang-
Kai-Shek sig og ljet sem vildi hann hlýða flokknum, en
það var aðeins bragðvísi hans. Þegar verslunarbankinn
í Shanghai, verkfæri bankaauðvaldsins enska, lánaði hon-
um 10 miljónir dollara, sleit hann, 18. apríl, öllu sambandi
við Wuhan-stjórnina og hóf uppreisn gegn henni. Alstað-
ar, þar sem herdeildir þær er hann rjeð yfir, voru, rjeðst
liann ógurlega á verkamenn, því hann kendi áhrifum
þeirra um missi alræðis síns. í Shanghai, Futschau, Hang-
chow, Nanking og Kanton, hóf hann hið hræðilegast blóð-
bað, verkamenn voru drepnir hundruðum saman, fjelags-
húsum þeirra lokað og annari kúgun beitt. — Byltingar-
stjórnin setti Tschang-Kai-Shek þegar frá enibætti og lýsti
hann í útlegð, en fól Feng-Yu-Hsiang yfirhershöfðingja-
starfið. Hófst nú barátta milli byltingarstjórnarinnar og
svikara þessa, er talið var að myndi brátt taka höndum
saman við norðanherinn. Hjeruð þau, er byltingin áður var
búin að vinna, skiftast svo á milli þeirra: Wuhan-stjórn-
in ræður yfir Hunan, Hupe, Kiangsi, Schensi, Kansu,
Kuichow, Kwangsi, Szechuan og hluta úr Honan, Kwan-
tung og Nganhui. Tschang-Kai-Shek ræður yfir Kiangsu,
Tschekiang, Fukien og meirihluta Kwangtung. Eru það
einkum sjávarhjeruðin, þar sem borgaauðvaldið er sterk-