Réttur - 01.02.1927, Qupperneq 75
Rjetturj BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN 77
ast og vernd Breta næst, en þar eru og samtök verkalýðs-
ins öflugust. Meginhluti byltingarhersins fylgir stjórninni
og ennfremur hinn ágæti her Feng-Yu-Hsiang’s (200000).
En Tschang-Kai-Shek á aðstoð Breta vísa og nægð fjár,
— og niá rnikið með því gera.
Hinsvegar hefir Tschang-Kai-Shek mist inikið, sem von
er, við slík svik. Meðal annars hefir sonur hans, sem er
kommúnisti við Sun-Yat-Sen-háskólann í Moskwu, sagt
slitið öllum böndum þeirra á milli. Koinmúnistarnir í Kína
styðja nú Kuo-Min-Tang enn betur en fyrr og hafa tveir
þeirra tekið við ráðherrastöðum í Wuhan-stjórninni, Hsa-
Sao-chen orðið verkamálaráðherra, en Tang-Ping-san
landbúnaðarráðherra.
Byltingin í Kína er komin á hættulegasta stig sitt. Bylt-
ingarstjettirnar eru klofnaðar, auk baráttunnar gegn er-
lendu auðvaldi verður nú alþýðan að berjast gegn stór-
borgarastjettinni innanlands. Bíður nú öli veröldin með
óþreyju úrslita þessa hildarleiks.
Frelsisbarátta undirokðuu þjóðanna.
Mexiko. — Suður-Amerika. — Alþjódasamband gegn
yfirgangi stórveldanna.
Sífelt magnast barátta sú, sem háð er um allan heim
milli auðvalds stórþjóðana annarsvegar og alþýðu flestra
landa heimsins hinsvegar. Hefur »Rjettur« áður (9. og
10. árg.) greint frá baráttunni í Asíu og Afríku, þar sem
fornar menningarþjóðir eru að reyna hrista af sjer alda-
langa kúgun, og eiga þær þar einkum í höggi við Breta.
i nýja heiminum hefur hinsvegar ríki komið fram á
sjónarsviðið, sem áður taldi sjer vanvirðu að ágangi á
rjett smáþjóðanna, en seilist nú flestum djarfar til yfirráða
yfir framandi, frjálsum, þjóðum. Það eru Bandaríki Norð-
ur-Ameríku. í síðasta hefti »Rjettar« var Iýst baráttu
þeirra við Breta um völdin í Suður-Ameríku. Nú skal sagt
lítt gjörlar frá baráttu þeirra við Mexiko og frelsishreyf-
ingum þjóðanna í Suður- og Mið-Ameríku gegn þeim.