Réttur - 01.02.1927, Side 77
Rjettur] BARATTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN
79
ölæsir og óskrifandi, og fór sjálf með stjórnarvöldin að
mestu leyti. Síðan hefir vald hennar minkað mikið, en er
þó afar hættulegt ennþá, en sjálf stendur hún í sambandi
við afturhaldslið jarðeigendanna og auðvaldsins. Ríkis-
stjórnin sá því nauðsynina á að brjóta á bak aftur vald
kirkjunnar yfir hugum lýðsins. Hófst forsetinn Calles
handa með að framkvæma lög frá 1917, er ekki höfðu ver-
ið framkvæmd fyrr, og bönnuðu trúarbragðakenslu, eigi
aðeins í ríkisskólum, heldur og í einkaskólum. Fleiri lög,
er takmörkuðu rjett kirkjunnar voru þá framkvæmd, svo
sem að banna prestunr afskifti af stjórnmálum, banna trú-
flokkablöðum að rita um stjórnmál o. s. frv. Yfir þessu
reiddust hinir kaþólsku höfðingjar og fanst valdi sínu.
hætta búin. Hófst nú hin harðasta deila. Greip kirkjan nú
til þess ráðs að lýsa landið í bann. Allir prestar hættu að
vinna skylduverk sín, engar vígslur, skírnir og þessháttar
athafnir fóru fram, öllunr kirkjum var lokað. Lengi vel
þótti tvísýnt, hvor sigurinn bæri úr býtum, en hitt var víst,
að hin róttæka stjórn í Mexiko barðist lijer eigi aðeins
fyrir sigri, heldur og fyrir lífi sínu. Þó fóru svo leikar, að
afturhaldið varð undan að láta, hin volduga kaþólska
kirkja varð að beygja sig og heita, að hlýða lögum þess-
um. Stjórnin bar sigur úr býtum.^
En þessi orrahríð er þó aðeins smáskærur í saman-
burði við’það, sem á eftir fer; kaþólska kirkjan er aðeins
framher afturhaldsins. Nú nálgast sá óvinurinn, sem skæð-
astur er, og virðist nú óðum draga til úrslitadeilunnar við
hann. Það er auðvald Bandaríkjanna.
Mexiko er auðugt af gulli, silfri, kopar og blýi, en þó
auðugast að steinolíu. 1921 voru unnin þar 29 miljón
tonn af olíu, eða fjórði hluti allrar heimsframleiðslunnar.
Það er því ekki að undra, þótt steinolíukóngar heimsins
hafi ágirnst landið, enda hefir enska og Bandaríkja-auð-
valdið háð um það harða deilu og hinir síðari orðið hlut-
skarpari. Ráða Bandaríkjamenn yfir % hlutum olíunnar