Réttur - 01.02.1927, Síða 82
84 BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRÁÐIN [Rjettur
og svo brugðist þegar út í hana var komið. Þótti því
verkalýðnum og þó einkum róttækari hluta hans full á-
stæða til að rannsaka stjórnina á allsherjarverkfallinu og
hvort ekki bæri að styðja námumenn. Fanst mönnum valið
tækifæri til þess á verklýðsþingi því, er halda átti í
Bournemouth um haustið. En þegar til kom bönnuðu »for-
ingjarnir« að ræða þessi mikilvægustu mál, sem verkalýð-
urinn þá hafði á dagskrá sinni. Fór þá æ fleirum verka-
manna að þykja það óhjákvæmilegt að fá nýja róttæka og
trúa foringja í stað þessara gömlu hægfara. Virðist það nú
vera eitt örðugasta viðfangsefni breska verkalýðsins að
skifta um foringjalið sitt. Vex sú hreyfing óðum, er krefst
nýrra leiðtoga. Óháði jafnaðarmannaflokkurinn enski (I.
L. P. ) samþykti t. d. nú á þingi sínu að hafa Macdonald
ekki sem fulltrúa sinn í stjórn L. P. (Verklýðsflokksins)
þar, sem liann væri eigi Iengur sömu skoðunar og flokkur-
inn. En Macdonald þykir liafa brugðist ógurlega vonum
manna í jafnaðarmálum.
En breska auðvaldið hygst að láta knje fylgja kviði.
Verkalýðurinn er tvístraður, viðurkendu foringjarnir deig-
ir og »blendnir í trúnni«, völdin í höndum auðvaldsins —
en vaxandi byltingarhreyfing meðal verkalýðsins. Hygst
það því að gera nú þær breytingar á verklýöslöggjöf, er
lami verklýðshreyfinguna algerlega. Frumvarp það, sem
íhaldsstjórnin hefur lagt fyrir þingið, um þetta mál, fer
fram á þetta í aðalatriöum sínum:
Hvert það verkfall, sem miðar að einhverju ööru en
lausn vinnudeilu innan þeirra iðngreinar, er verkamaður-
inn tilheyrir, er ólöglegt, einkum þó ef það vill með þving-
un liafa áhrif á stjórnina, hið opinbera eða mikilvæg fyrir-
tæki þjóðfjelagsins. Við þessu liggja sektir alt aö 10 pund-
um og refsing alt að 2 ára fangelsisvist. (Þetta er bann
samúðarverkfalla, pólitískra verkfalla, allsherjarverkfalla
o. fl.).
Ríkisvaldið heitir hverjum þeim vernd og skaðabótum,
er neita að taka þátt í slíkum verkföllum. Nær það einnig