Réttur - 01.02.1927, Síða 90
92
VÍÐSJÁ
[Kjettur
Landbúnaður 10,092.
Fiskiveiðar 14,800.
Iðnaður og handverk 6,792.
Verslun og samgöngur 8,965.
Heimilishjú 6,384.
Á 7 árum hefir auðvitað ýmislegt breytst og þá vafalaust í þá
átt að fjölga verkalýðnum.
Þetta yfirlit sýnir verklýðssamtökunum gerla hvert starf bíð-
ur þeirra. Af þessum 47 þús. eru 25 þús. framfærendur og tak-
mark samtakanna mun verða að vera að ná þeim öllum í verk-
lýðssamtök — og starfsmönnum ríkisins líka, en þeir ei-u 1777
framfærendur. Enn sem komið er, eru innan vjebanda Alþýðu-
sambandsins um 5000, nokkuð er í verklýðssamtökum utan þess
og allmargir í iðnaðarmanna-, ríkisstarfsmanna- og farmanna-
fjelögum utan verklýðssamtakanna. Mun því tala »organiser-
aðra« verkamanna mun hærri en þetta.
En skýrast sýnir þetta þó allri íslenskri alþýðu, bændum og
verkalýð, hve sjálfsagt það ætti að vera að þessar stjettir, sem
til samans eru 85% allrar þjóðarinnar, færu saman með völdin
og þjóðfjelaginu væiú stjórnað með hagsmunum þeirra fyrir
augum. Takmark jafnaðarstefnu nútímans, kommúnismans, er
einmitt að sameina þessar tvær aðal vinnandi stjettir, sem nú er
mest gengið fram hjá, þá ríkjum er ráðið, í eina sterka, sam-
huga heild, sem -reisi þjóðfjelag vort á nýjum grundvelli, þar
sem líf og atvinna þessara vinnandi stjetta er betur trygð en
nú. Við sjáum því af þessum samanburði, að hjer sem úti í
heimi, er kommúnisminn hreyfing í þágu yfirgnæfandi meiri-
hluta mannkynsins.