Réttur - 01.02.1927, Side 91
R i t s j á
Theodor Friðriksson: Lokadag-
ur I. Rvík 1926.
Menn tala með fjálgleik miklum um hvernig þjóðin hvað eftir
annað hálfdrepi skáld sín og ýmsa ágætismenn úr hor — og finst
vel og maklega sagt, þegar stórskáld, sem við erum að fara með
á sama hátt, rífur hræsnisblæjuna af þessari »iðrun vorri eftir
dauðann«, með því að segja: »Og ef að við drepum þig aftur úr
hor, í annað sinn grætur þig þjóðin«. —
Það er auðvelt að tala fagurlega um slíkt, þegar sá, sem á í
hlut, hefir slíkan kraft til að bera, að honum auðnast að brjóta
af sjer þá andlegu hlekki, sem fátækt og sultur leggja á menn,
rísa upp yfir það og láta það í litiu skemma list sína. En annar
hreimur mun koma í röddina, þegar ritin, sem þeir menn gefa
út, er hefðu ef til vill getað orðið slíkir andans menn sem þeir,
sem nú eru grátnir, — þegar þau bera vottinn um að fátæktin
og eymdin, sem skáldið hefur átt við að stríða alt sitt líf, er og
farin að setja hræðileg mörk sín á anda hans og list.
Theodór Friðriksson er maður, sem alt sitt líf hefur lifað við
fátækt, sem hún er verst hjer á landi. Hann hefur orðið að þola
alt það þrældómslíf, sem verkalýður sá lifir, er verður að þeyt-
ast landshornanna á milli til að elta tækifærin til að fá að þræla.
Hann hefur stundað hákarlaróðra, verið fjölmargar vertíðir á
Siglufirði og Vestmanneyjum og' á flestum þeim stöðum lands,
sem atvinnu er að hafa fyrir aðkomufólk. Er nú nokkur von til
þess, að þetta sje álíka skóli og ítalíuferðir eða sífeld andleg
samvist við mestu andans jöfra heims?
Samt hefur þessi maður sýnt að nokkuð hefur í honum búið.
Skáldsagan »Útlagar«, sem hann reit fyrir 6 árum, sýndi mikinn
þrótt og skáldleg' tilþrif. Var hún einnig mjög sjerstæð sem þjóð-
fjelagslýsing og í því efni rannsóknarverð. — Nú hefur höf.
gefið út fyrri hluta bókar, er heitir »Lokadagur«. Ekki hlýðir
að dæma um hana fyrr en öll er, en sýnileg virðast þó aftur-
fararmerki frá hinni fyrri. »Útlagar« voru gagnrýning á hinu
upprennandi borgaralega þjóðfjelagi — og svo virðist, sem
þessi verkamaður, með þær tilfinningar og' gáfui', sem hann hef-
ur, og það líf að baki sjer, sem hann á, hefði átt nægan eld í