Réttur - 01.06.1952, Page 13
RÉTTUR
141
varð tala þeirra lista, er í umferð komust, meir en fjögur
þúsund.
Sósíalistaflokkurinn annaði nær allri dreifingunni og
hafði á hendi skipulagningu söfnunarinnar.
Margir sjálfboðaliðar gáfu sig fram þegar fyrstu dagana
og jókst f jöldi þeirra allan tímann. Má fullyrða, að um eitt
þúsund manns hafi tekið virkan þátt í undirskriftasöfn-
uninni.
Auk skrifstofu Sósíalistaflokksins voru skrifstofur Iðju
í Reykjavík og Dagsbrúnar virkar í dreifingu listanna.
Sömuleiðis allar verzlanir Kron og bókabúð Máls og menn-
ingar. Nokkrar aðrar verzlanir í Reykjavík höfðu lista
frammi.
Þjóðviljinn var eina dagblaðið, 3em beitti sér fyrir söfn-
uninni. Dag eftir dag hvatti hann íslendinga til að leggja
undirskriftasöfnuninni lið, túlkaði hinar ýmsu hliðar máls-
ins, birti upplýsingar um gang söfnunarinnar og skipu-
lagði starfið.
Hann var í senn daglegur skipuleggjari söfnunarinnar
og áróðurstæki hennar.
Hin dagblöðin kusu þögnina.
í ríkisútvarpinu var af hálfu nefndarinnar haldið uppi
samfleyttri auglýsingastarfsemi.
Helgina eftir að söfnuninni var hrundið af stað, héldu
sósíalistar Jónsmessumót sitt á Þingvöllum. Var undir-
skriftasöfnunin einn þáttur mótsins og fengust þar um 500
nöfn, en allflestir mótsgestir höfðu þá þegar skrifað undir.
Tveim dögum eftir að söfnunin hófst, úrskurðaði bæjar-
ráðið í Reykjavík hina dæmdu út af kjörskrá til forseta-
kjörs. Ýtti þessi ráðstöfun enn undir þátttöku almenn-
ings á söfnuninni.
Fáeinmn dögum eftir að söfnunin hófst, fóru beiðnir að
berast utan af landi um fleiri lista. Og þann 27. júní birti
Þjóðviljinn fyrstu tölurnar utan af landi: 65 nöfn frá Graf-
arnesi í Grundarfirði og 48 nöfn frá Sveinseyri í Tálkna-