Réttur


Réttur - 01.01.1953, Side 7

Réttur - 01.01.1953, Side 7
é RÉTTUR 7 III. Nokkru fyrir aldamótin 1900 hófst sú hreyfing, er leggur grund- völíinn að þriðja menningarskeiði þjóðar vorrar, því, sem verður hið stórfenglegasta, ef þjóð Eddanna og íslendingasagnanna reynist sjálfri sér trú. Fram á sjónarsvið sögunnar kemur sterkasti full- trúi allra þeirra vinnandi stétta, sem frá upphafi íslandsbyggðar höfðu borið þjóðfélagið uppi með starfi sínu og striti, — verkalýður nútímans. Hann krefst þess að auðurinn verði þjónn alþýðunnar, ekki herra, — að menningin verði sameign alls fólksins, ekki fárra útvaldra. Og í sókn verkalýðsins og baráttu til bættra kjara og valda, vinnur íslenzk alþýða og beztu menntamenn, er við hlið hennar standa, þau afrek, sem eru fyrirheit um glæsileik þess ókomna, sem íslenzk þjóð enn á eftir að skapa með sigri sínum og sósíalismans. Að austan og vestan berst boðskapur sósíalismans með „Þyrn- um“ og „Andvökum". Þorsteinn og Stephan G. kveða kjark og ást, vit og vilja í það fólk, sem lengst hafði blundað. Otto, Þorvarð- ur, Pétur hefja merki verklýðssamtakanna. Neisti kviknar af neista, unz hugur alþýðunnar er í báli. Frá eldskírn hásetaverk- fallsins 1916 til vetrarverkfallsins mikla í desember 1952 er saga rísandi verklýðsstéttar letruð logandi stöfum í sögu íslands. Það lýsir af fórnum þeirra einstaklinga, sem lögðu ótrauðir allt í söl- urnar til að vekja sína stétt og gera hana sterka. Það birtir yfir landinu við þá meðvitund um mátt sinn og rétt, sem hin kúgaða stétt hefur öðlazt. Það eru orðin þáttaskil í íslandssögunni: „í þrælsins nöldur og öreigans magnlausa mál, færist máttur og ægikyngi af nýjum toga“. Sjómennirnir, sem skapa undirstöðuna undir síbatnandi afkomu þjóðarinnar með sínu miklu afköstum og áhættusama erfiði, — verkamennirnir, sem reisa byggð íslands frá grunni á hálfri öld, leggja vegi, byggja brýr, hafnir, vélbáta og verksmiðjur, umskapa snautt og rúið land í nýtízku þjóðfélag, — bændurnir, sem rækta á einum mannsaldri margfalt meir en allar kynslóðir áður, — allur þessi vinnandi fjöldi, konur og menn, vakna til meðvitundar um að vinna þeirra er sá töfrasproti, sem seyðir allsnægtirnar upp úv auðlindum íslands á sjó og landi, — ef fjöldinn aðeins fær að vinna frjáls, ári þess arðrán auðmannastéttar og vitfirrtar krepp- ur hennar, svipti fólkið arðinum af vinnunni og möguleikunum til að starfa.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.