Réttur - 01.01.1953, Side 9
KÉTTUR
9
vort aldrei hefur þarfnast eins og nú, þegar heiður þjóðarinnar og
mannorð er í hættu. — Enn andinn er enn hinn sami og sá, er
aldrei varð bugaður hjá Bólu-Hjálmari, — sá uppreisnarandi al-
þýðunnar, — mannsins, — sem enginn Akra-hreppur, engin Ame-
ríka, fær brotið.
Það er verkalýður íslands, alþýðan, sem hefur nú tekið for-
ustuna í baráttu þjóðarinnar við hið ameríska vald. Sameiningar-
flokkur alþýðunnar — Sósíalistaflokkurinn er forustulið hennar,
foringinn í sókn hennar og vöm.
Verkalýðssamtökin hafa beitt mætti sínum þannig að hrikt hefur
í morknum máttarstoðum ameríska fjárplógsvaldsins á íslandi:
Allsherjarverkfall reykvísks verkalýðs gegn Keflavíkursamningn-
um 1946, sögulegur mótmælafundur verkalýðsins í Reykjavík 30.
marz 1949, og hin voldugu verkföll gegn afleiðingum
amerískrar kúgunar: gengislækkunar og launaráns, í maí 1951 og
desember 1952.
Skáldin hafa látið ameríska herdrottna og íslenzka erindreka
þeirra kenna á yfirburðum íslenzks anda og listar yfir amerískum
auð og stáli. Einmitt af því beztu skáld alþýðunnar eru í órofa
andlegum tengslum við fortíð þjóðar vorrar og nútíð, alla baráttu
hennar fyrir lífinu, megna þau að yrkja svo stórfenglega sem nú.
Snorri Sturluson megnaði, af því hann var að særa fram öll
heilbrigð öfl íslenzkrar bændastéttar og þjóðlegra höfðingja, til
baráttu gegn erlendu konungsvaldi, að meitla með sögunum í
meðvitund þjóðarinnar þær myndir, sem ei munu firnast meðan
íslenzk tunga er töluð af frelsisunnandi fólki, myndirnar af Einari
Þveræingi á Lögbergi, Halldóri Snorrasyni með saxið reitt yfir
Haraldi harðráða, Skallagrími fyrir konungi, Agli og ótal fleirum.
Jónas varð að stilla á hinn þýðasta streng, sem þjóðarhjartað
ókalið átti til, til þess að kveikja líf í hálfsloknaðri glóð, gefa
þjóðinni mál sitt á ný, vopn í baráttunni gegn erlendu kaupmanna-
og embættisvaldi. Og nú töfrar Halldór fram í hugskoti þjóðarinn-
ar allrar sýnir sögu hennar, sem mættu verða henni viðvörun og
eggjun á þeirri örlagastund, sem hún afræður hvort hún ætlar að
dugá sem drengur eða drepast sem amerískt þý. — Það er aðeins
þegar íslandi ríður allra mest á að það eignast menn eins og
þessa þrjá.
★
Við þessa risandi hreyfingu alþýðu og íslenzkra skálda, við þessi
frjómögn framtíðarínnar heyr ameríska auðvaldið með aðstoð