Réttur


Réttur - 01.01.1953, Page 12

Réttur - 01.01.1953, Page 12
12 RÉTTUR Meðan alþýðan berst eins og tuttugu þúsund verkamenn og verkakonur gerðu í vetur, ■— meðan skáldin yrkja eins og Halldór, Jóhannes og aðrir, — og meðan unga alþýðukonan yrkir og berst i senn, eins og sveitakonan tvítuga í Mývatnssveit, sem kvað „Morgunljóð“ sín til þjóðarinnar í síðasta „Rétti“, — þá á eyjan hvíta sér enn dag, því fólkið þorir. ÖU fortíð og framtíð íslands mænir til vor í dag, ögrar oss. Fortíðin spyr hvort vér ætlum að svíkja hana, eftir allar þær fórnir, sem undanfarnar kjmslóðir hafa fært. Framtíðin spyr, hvort vér ætlum ekki að láta hana verða til. Það er vissulega eldraun, sem íslenzk þjóð lifir um þessar mundir. En það er ekki ægilegri eldraun en sú sem ýmsar undanfarnar kynslóðir hafa lifað og staðizt ef borið er saman við hve miklu betri þjóðlegar og alþjóðlegar kringumstæður þjóðin nú heyr frelsisbaráttu sína við. Það hefur áður verið reynt að fá íslendinga til þess að afsala sér réttinum til landsins. Það var reynt sleitulaust í þrjár aldir 1264 til 1550, en alltaf neitað. Það var reynt síðustu hundrað árin fyrir 1944 að sætta oss við innlimun í danskt ríki og undir danskt kon- ungsvald, og stóð tæpast 1907—8, en þjóðin stóðst eldraunina undir forustu ágætra leiðtoga og neitaði. Og þótt amerískt auðvald og undirlægjur þess vaði uppi á íslandi nú og hafi miklu stolið, mörgu rænt og mörgum spillt, þá höfum vér enn engu tapað, sem ekki verður unnið aftur, meðan vér höldum enn því sem óglatað er í dag. Og það eru engin smáræðis vopn, ef vér erum menn til þess að bera þau og beita þeim af allri þeirri list og harðfengi, sem þau eiga skilið: Vér eigum enn þá íslenzka tungu, til að hvetja oss til dáða. Vér eigum enn þá óbundnar islenzkar hendur, til að hrista af oss okið. Vér eigum enn óbeizlaða íslenzka fossa, sem vér getum virkjað til blessunar börnum vors lands. Vér eigum enn þá öll réttindi sjálfstæðra íslenzkra þegna, sem geta með atkvæðum sínum sagt upp Atlantshafssamningi, afnumið hemáms-smánina og rekið ameriska innrásarherinn á brott með einu orði, — ef vér aðeins viljum það, segjum það sjálf. Það eru ýmsir, sem telja oss trú um að þessi réttur vor yrði ei virtur. Amerískt auðvald myndi ei yfirgefa ísland. fyrir orð íslenzks meiribluta á Alþingi. Slíkt er blekking. Ef Alþingi íslendinga segir ameríska hernum.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.