Réttur - 01.01.1953, Page 25
RÉTTUR
25
Það er heilög skylda vor að tryggja áframhaldandi framfarir
vors sósíalistiska föðurlands. Vér verðum að þroska og efla vorn
sósíalistiska iðnað, virki máttar lands vors og valds. Vér verðum
að styrkja af fremsta megni samyrkjubúskapinn, keppa að áfram-
haldandi velmegun og framförum allra samyrkjubúa í ráðstjórn-
arlöndunum og tengja órjúfandi vináttubönd milli verkalýðs og
samyrkjubænda.
í innanlandsmálum verður helzta viðfangsefni vort og áhugamál
að vinna sýknt og heilagt að bættri afkomu og efnalegri vellíðan
verkafólks, samyrkjubænda, menntamanna og allra ráðstjórnar-
þjóða. Sú skylda að vinna óhvikult að hamingju almennings, að
uppfylla eins og frekast er unnt allar þarfir hans, efnalegar og
menningarlegar, er æðsta boðorð flokks og ríkisstjórnar.
Lenín og Stalín sköpuðu flokk vorn og stældu sem hið mikla
endursköpunarafl þjóðfélagsins. Alla ævi sína kenndi félagi Stalín
oss að eigi gæti æðri stöðu en vera félagsmaður í Kommúnista-
flokknum. Félagi Stalín barðist einlægt og þráfaldlega fyrir ein-
ingu flokks vors gegn óvinum hans, flokkurinn skyldi vera þéttur
og heill sem klettur.
Það er heilög skylda vor að halda áfram að efla hinn mikla
kommúnistaflokk vorn. Vald og ósigranleiki flokksins er fólginn í
einingu og festu óbreyttra liðsmanna, einingu í vilja og verki,
í hæfni flokksmanna til að gera sinn vilja að vilja flokksins og
óskum. Vald og ósigranleiki flokks vors er fólginn í hinum
óslítandi tengslum hans við fjöldann. Eining flokksins og þjóðar-
innar er reist á þeirri þjónustu sem flokkurinn rækir sifellt gagn-
vart hagsmunum alþýðunnar. Vér verðum að gæta einingar flokks
ins eins og sjáaldurs augna vorra; vér verðum að treysta enn betur
hin óslítandi bönd flokksins við fólkið, mennta kommúnista og alla
vinnandi menn í anda hinnar mestu pólitískrar árvekni, og hlífðar-
lausu stöðuglyndi í baráttu við innlenda og erlenda óvini.
Undir forystu Stalíns mikla hafa verið smíðuð hin voldugu
virki friðar, lýðræðis og sósíalisma. í bróðurlegri einingu sækja
nú fram ásamt Ráðstjórnarþjóðunum hin mikla kínverska þjóð,
bræðraþjóðir vorar í Póllandi, Tékkóslóvakíu, Búlgaríu, Ungverja-
landi, Rúmeníu, Albaníu, Austurþýzka lýðveldinu og Alþýðulýð-
veldi Mongólíu. Hin hetjulega þjóð Kóreu berst fyrir sjálfstæði
sínu af hinni mestu einbeitni. Þjóðir Vietnam berjast hugrakkri
baráttu fyrir þjóðfrelsi og sjálfstæði.
Það er heilög skylda vor að vernda og styrkja fremsta afreksverk
þjóðanna, vígi friðar, lýðræðis og sósíalisma; að treysta og festa