Réttur


Réttur - 01.01.1953, Side 28

Réttur - 01.01.1953, Side 28
Hvað helnr Sósíal- isÉaflokknrinn gert fyrir landhúnaðinn? eftir ÁSMUND SIGURÐSSON Bændastéttin hefur lengst af síðan land byggðist verið ein fjöl- mennasta stétt þessarar þjóðar. Oft hefur þó bæði í ræðu og riti verið of lítið gert úr þýðingu annarra atvinnugreina, sem þjóðin hefur jafnframt haft sér til lífsframfæris, einkum fiskveiða þeirra, er stundaðar voru hér fyrr á öldum. Er þetta bersýnilega stundum gert í pólitískum tilgangi, þ. e. til að smjaðra fyrir því fólki, sem landbúnað stundar, með því að halda þeirri skoðun fram, að atvinnuvegur þess hafi einn verið lifibrauð þessarar þjóðar frá upphafi íslands byggðar, og bjargað henni gegn um hörmungar og óáran hverskonar, er að henni hefur steðjað. Allur slíkur metingur um gildi einstakra atvinnugreina bæði í nútíð og fortíð er hvorttveggja í senn bæði heimskulegur og skaðlegur, þegar um er að ræða atvinnuvegi, sem tvímælalaust, skapa verðmæti, auka framleiðsluna, í fám orðum sagt, auka hag- sæld þjóðarinnar með því að veita vinnufúsum höndum tækifæri til að starfa að framleiðslu þjóðarauðsins. í þessu sambandi hefur einnig verið rekinn allmikill áróður á hendur þeim aðilum, er ekki hafa viljað taka undir slíkan meting, og þeim borið á brýn, að þeir væru landbúnaðinum fjandsam- legir. Einkum hefur Sósíalistaflokkurinn verið harðlega ásakaður fyrir andstöðu við landbúnaðinn og bændastéttina. Því hefur verið óspart fram haldið, að hann vildi hlut landbúnaðarins sem verstan í hvívetna, leggja niður byggðina, lækka vöruverð til bændanna, og annað eftir því. Svo ósvífinn hefur þessi áróður stundum orðið, að fá dæmi munu til annars eins í íslenzkri stjórnmálasögu. Það er þvi tilgangur þessarar greinar, að draga saman helztu stað-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.