Réttur - 01.01.1953, Blaðsíða 38
38
RÉTTUR
Alþýðusambands íslands á þeim grundvelli sem lagður er með
viðræðum nefndanna,“ eins og segir í dagskránni.
Að öllu þessu varð séð svo greinilega sem þörf var á, a'ff Búnað-
arþing fór alltaf undan í flæmingi, þegar um þaff var aff ræða aff
gera eitthvaff, er eflt gæti samstarf milli þessara stétta, og eins
fyrir þaff, aff þetta samstarf var þegar fariff aff skapa bænda-
stéttinni meira efnaiegt öryggi en hún hafffi nokkru sinni búiff
við fyrr, þaff öryggi sem skapaffist af sex manna nefndar sam-
komulaginu.
Og það var ekkert annað en óttinn við pólitískt samstarf þess-
ara stétta sem réði því að sjálft Búnaðarþing skyldi verða drag-
bítur á þessa þróun.
Þrátt fyrir allt þetta hefur tekizt að halda aðalgrundvelli sex
mannanefndar samkomulagsins í gildi, þótt ýmsar formbreytingar
hafi verið gerðar á útreikningsaðferðum landbúnaðarvísitölunnar.
En á síðustu árum hafa gerzt aðrir hlutir sem virðast ætla að
eyðileggja það í framkvæmd, þótt forminu sé haldið á pappírnum.
Svo sem kunnugt er hefur vérðlag farið stórkostlega hækkandi
hér á landi hin síðari ár, einkum þó eftir að gengi krónunnar var
lækkað, bátagjaldeyriskerfið upptekið og hömlur á verzlunar-
álagningu afnumdar í sambandi við hina „frjálsu verzlun".
Auðvitað hefur þessi þróun sýnt sig í hækkun framfærsluvísi-
tölunnar, sem að vísu er reynt að breiða yfir með allskonar breyt-
ingum á útreikningi hennar, eingöngu gerðum til að blekkja
almenning.
En, með því að reikna framfærsluvísitöluna út eftir sömu regl-
um og gert var fram til 1947 má fara nærri um þessa þróun þótt
hækkunartölurnar verði án efa fremur of lágar en of háar, miðað
við raunveruleikann. En samkvæmt slíkum útreikningi lítur
dæmið þannig út.
Vísitala framfærslukostnaðar: 1. jan. 1947 310 stig
1. — 1948 319 —
1. — 1949 326 —
1. — 1950 342 —
1. — 1951 489 —
1. — 1952 584 —
1. — 1953 628 —
Eins og taflan sýnir er hér um rúmlega tvöföldun að ræða á
þessum árum. Hins vegar hafa tekjur þess almennings sem er
kaupendur landbúnaðarvaranna ekki hækkuð neitt svipað þessu.