Réttur - 01.01.1953, Síða 43
RÉTTUR
43
Marx kvæntist unnustu sinni, Jenny von Westpfalen 1843,
og um haustið sama ár fluttist hann búferlum til Parísar.
Þar gaf hann út þýzk-franskar Árbækur (deutsch-franz-
ösische Jahrbiicher) með Arnold Riige, sem var í flokki
vinstri Hegelsinna. Aðeins eitt hefti kom út af þessu tíma-
/ riti, og í greinum þeim, er Marx ritaði í það, kemur hann
þegar fram sem byltingarsinni. 1 ritgerðinni „Gagnrýni á
réttarheimspeki Hegels“ skrifaði hann setninguna alkunnu:
„Vopn gagnrýninnar geta að vísu ekki komið í staðinn
fyrir gagnrýni vopnanna. Efnalegu valdi verður aðeins
steypt af stóli með efnalegu valdi, en fræðikenningin sjálf
verður efnalegt vald, óðar en hún hefur náð tökum á
f jöldanum.....“
1 september 1844 kom Friðrik Engels sem snöggvast til
Parísar. Þeir Marx kynntust, og uppúr því hófst vinátta
þeirra, óbrotgjörn, frjósöm og ævilöng. Báðir tóku þeir
virkan þátt í starfsemi byltingarhópanna í París — og
sköpuðu fræðikenningu og baráttuaðferð byltingarsinnaðs
sósíalisma verkalýðsins, þ. e. a. s. kommúnismann. En sú
kenning mótaðist í harðri baráttu gegn ýmiskonar af-
brigðum smáborgaralegs sósíalisma.
1845 var Marx vísað frá París að undirlagi prússnesku
stjómarinnar. Hann fluttist þá til Brussel og skrifaði þar
bók sína „Eymd heimspekinnar“, þar sem hann gerði upp
reikningana við smáborgara-sósíalisma Proudons. Þá um
vorið var það, að Moll hvatti þá Marx og Engels til að
ganga í „Bandalag réttlátra“ og skýra frá kenningum sín-
um um kommúnismann á þingi bandalagsins og taka þátt
í endurskipulagningu þess. Með því að fulltrúar banda-
lagsins höfðu látið fyrri skoðanir sínar fyrir róða og töldu
þær rangar, gengu Marx og Engels í samtökin og skipu-
lögðu nú fyrsta verkalýðsflokkinn, „Kommúnistabanda-
lagið“. Og í umboði þess sömdu þeir svo kommúnista-
ávarpið, sem út kom í febrúar 1848 og varð fæðingarvott-