Réttur


Réttur - 01.01.1953, Page 47

Réttur - 01.01.1953, Page 47
RÉTTUR 47 tímabil ólíkt örari vaxtar verkalýðshreyfingarinnar í öll- rnn auðvaldslöndum. Síðustu æviárin vann Marx að riti sínu „Auðmagninu“, og varð þó oft að gera hlé á sökum sjúkleika. Hann varð enn fyrir tveimur þungum áföllum. 2. desember 1881 dó kona hans úr krabbameini, sem lengi hafði þjáð hana. Marx var sjálfur svo veikburða, að læknirinn bannaði honum að vera við jarðarförina. Elzta dóttir þeirra hjóna, frú Jenny Longuet lézt svo snögglega 11. janúar 1883, 39 ára að aldri. Marx, sem dvaldist í Frakklandi um þessar mundir, sneri þegar aftur til Lundúna. En heilsa hans var svo illa farin, að hann gat ekki náð sér framar meir. 14. marz 1883, fjórðungi stundar fyrir kl. 3 síðdegis, sofnaði hann í hæg- indastólnum sínrnn í hinzta sinn, hóglátlega og sársauka- laust. Friðrik Engels, hinn trúfasti vinur hans, hélt minn- ingarræðuna við gröf hans — og lauk henni með þessum spámannlegu orðum: „Nafn hans mun lifa rnn aldir og verk hans slíkt hið sama.“ (Lauslega þýtt úr tímaritinu Einheit, jan. 1953).

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.