Réttur


Réttur - 01.01.1953, Page 59

Réttur - 01.01.1953, Page 59
 59 R É T T U R unum milli sveita- og borgalífs og verkmennta þjóðina svo, að brúað verði sem fyrst bilið milli líkamlegra og andlegra starfa. Tveir heimar. Málsvarar auðvaldsins hafa tekið áætluninni nýju fálega. En þeir hafa naumast borið við að kalla hana fánýtt auglýsingaplagg eða spá því, að framkvæmdimar færu allar út um þúfur. Þeir eru líka orðnir langþreyttir á spádómum. Þeir spáðu því vikulega á fyrstu árum Sovétríkjanna, að þau mundu þegar líða undir lok. Þeir sögðu það fyrir, að fimmára-áætlanirnar mundu mistakast herfilega, — og þeir staðhæfðu, að nazistaherirnir mundu gjör- sigra rauða herinn á nokkrum dögum. Nú hafa þeir tekið þann kostinn, að leggja spádómana sem mest á hilluna, en reyna að kæfa allar fréttir um þessi nýju stórvirki með lognum æsifregn- um um fangabúðir, þrælavinnu, gyðinga-ofsóknir og árásarstríð. En sannleikurinn verður ekki kæfður til lengdar, þótt hátt sé hrópað. Áætlunin mikla er ekki eingöngu stórfenglegt og samstillt átak til að gera náttúruna manninum undirgefna. Hún er jafnframt trúarjátning, ef svo má að orði kveða. Hún er yfirlýsing um friðarhug og staðfesting á trúnni á manninn, þeirri trú, að mann- kynið sé fært um að skapa sér auðugri, fegurri og betri heim. Það var þetta m. a., sem Stalín veik að í svari sínu við ásökunum Attlees um árásarfyrirætlanir Ráðstjórnarinnar — og gegn því vissi stjórnmálagarpurinn brezki engin rök. Því að hvernig gat ríki, sem var að tygja sig í nýja heimsstyrjöld, lagt í slíkar fram- kvæmdir? Og hvaða vit var í því? En hvað hefur svo auðvaldið upp á að bjóða, hver er „trúar- játning" þess og framtíðarsýn? R. T. Malthus, postuli hungurs og fátæktar, hefur nú verið dreginn upp úr gröf sinni eftir meira en aldarsvefn og birtist afturgenginn í hverju riti, er borgaralegir fræðimenn láta frá sér fara um þjóðhagsleg efni. Metsölubókin ameríska, „Road to Survival* eftir William Vogt, — er órækast vitni í þessum efnum. Höfundurinn kemst að þeirri niðurstöðu, að meirihluti jarðarbúa fái ekki nóg að borða, og eina tiltæka ráðið sé að fækka mannkyninu. — Og þar eru hungur og drepsóttir þarfir þjónar. „Mesta ólánið, sem komið gæti fyrir Kína .... er fækkun dauðsfalla“. Tjanganika hefur tvo meginkosti: „lága íbúatölu og svefnsýki“. „Læknavísindi nútímans byggja siðfræði sína á vafa- sömum fullyrðingum fávíss manns, sem var uppi fyrir 2000 árum .... og telja það enn skyldu sína að halda lífinu í eins mörgu fólki og unnt er“.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.