Réttur - 01.01.1953, Page 61
TVeir hefmsmarkailir
Markaður kapítalismans —
markaður sósíalismans.
eftir HAUK HELGASON
I.
Jósef Vissarionovich Stalin var ekki aðeins mikill stjórnmála-
maður, hann var einnig frábær fræðimaður, verðugur arftaki
þeirra Marx og Engels og Lenins.
Marx og Engels skilgreindu auðvaldsskipulagið, sögðu fyrir
óumflýjanlega þróun þess og rök og lögðu grundvöllinn að hinum
vísindalega sósíalisma — kommúnisma. Lenin tók við og skil-
greindi á marxistískan hátt hið imperialistíska þróunarskeið
kapitalismans. Hann lagði jafnframt fræðilegan grundvöll að upp-
byggingu sósíalismans — og stjórnaði þessari uppbyggingu fyrstu
árin.
Undir forystu Stalíns tókst þjóðum Sovétríkjanna að framkvæma
sósíalismann og við fráfall hans er nú svo komið, að framkvæmd
kommúnismans er skammt undan hjá sovétþjóðunum. Alveg eins
og Lenin var hinn mikli fræðimaður á tímabili imperialismans,
eins var Stalín hinn mikli fræðimaður á tímabili hinnar almerinu
kreppu kapítalismans.
Framsetning Stalíns í ræðu og riti var einkar ljós, hann hafði
í ríkum mæli þann hæfileika að segja frá erfiðustu viðfangs-
efnum á einfaldan hátt og auðskiljanlegan hátt. Skýrslur Stalíns
á flokksþingum Kommúnistaflokks Sovétríkjanna bera þessu
glöggt vitni. Þær voru eins og allt annað er hann lét frá sér
fara, þrungnar vizku og framsýni.
Síðasta fræðilega ritgjörð Stalíns kom út á árinu sem leið og
fjallaði um efnahagsleg vandamál sósíalismans og einnig um á-
stand og horfur í þeim hluta heimsins, er lýtur stjóm hagskipu-
lags kapitalismans.
Grein sú er hér fer á eftir er byggð á þessari ritgjörð Stalíns.