Réttur - 01.01.1953, Page 62
62
RÉTTUR
II.
Á meðan auðvaldsskipulagið var ríkjandi í öllum löndum heims
var heimsmarkaðurinn einn og órofinn. Þá var sú skipan mála, að
örfá háþróuð iðnaðarriki réðu lögum og lofum á þessum heims-
markaði. Þau héldu undir oki sínu hinum veigaminni auðvalds-
ríkjum, þótt sjálfstæð væru að nafninu, og þau mergsugu nýlendur
sínar og hin svokölluðu verndarríki. Heimsmarkaðurinn var sem
sagt ein heild, náði yfir öll ríki i heiminum.
Á þessu hefur orðið gerbreyting. í dag eru við líði tveir heims-
markaðir, ef svo mætti að orði komast, annarsvegar markaður
auðvaldsríkjanna, hinsvegar markaður sósíalistisku ríkjanna.
Það er mjög mikilsvert að menn geri sér fulla grein fyrir mikil-
vægi þeirrar breytingar, sem orðin er. Sérhver sá, er skilur hvers-
vegna þessi breyting varð og þá um leið hverjar afleiðingar hún
hefur í för með sér, er kominn að kjarna þeirra átaka er eiga sér
stað í dag á milli hins svokallaða austurs og vesturs. En undir
úrslitum beirra átaka er velferð alls mannkynsins — og þá um
leið sérhvers einstaklings — komin.
Upphafið að því að heimsmarkaður auðvaldsins rofnaði er bylt-
ing verkamanna og bænda í Rússlandi haustið 1917. Þá brutust
þjóðir á einum sjötta hluta jarðar undan oki kapítalismans og hófu
undirbúning að því að reka þjóðarbúskapinn á sósíalistiskum
grundvelli. Auðvaldsskipulagið varð ekki lengur hið eina og al-
tæka þjóðskipulag, þjóðfélagskerfi sósíalismans var að koma til
sögunnar. Hleð því hófst hin almenna kreppa kapítalismans, það
er kreppa sjálfs auðvaldsskipulagsins.
Þessi almenna kreppa auðvaldsskipulagsins magnaðist stórum
á árunum í milli heimsstyrjaldanna tveggja. Þjóðum Sovjetríkj-
anna tókst að byggja upp framleiðslukerfið í landi sínu, en það
hafði gjörsamlega verið lagt í rúst í heimsstyrjöldinni fyrri, í
borgarastyrjöldinni og í innrásum auðvaldsríkjanna á árunum
1918—1921. Með framkvæmd 5-ára áætlananna tókst það hvort-
tveggja, að koma upp stórfelldum og háþróuðum iðnaði og jafn-
framt gjörbreyta framleiðsluháttum landbúnaðarins þar sem sam-
yrkja var tekin upp i stað strjálbýlisháttarins. Atvinnuleysi varð
að fullu útrýmt, efnalegar og menningarlegar framfarir urðu
svo stórstigar að undrum sætir.
Á þessum sömu árum var allt öðru vísi umhorfs í auðvalds-
heiminum. Þjóðernishreyfingin meðal undirokuðu þjóðanna —
í nýlendunum og hálfnýlendum — varð með hverjum deginum