Réttur - 01.01.1953, Page 65
RETTUR
65
segja má að stefnt hafi verið á öndverð skaut. Aðstaðan á hinum
tveim heimsmörkuðum er þá um leið svo ólik sem verða má.
í sósíalistisku ríkjunum hafa efnalegu framfarimar verið stór-
kostlegar. Framleiðslan í iðnaði og landbúnaði hefur vaxið svo
ört að slíkt væri óhugsandi í auðvaldsríki. Iðnaðarframleiðslan
í Sovétríkjunum varð þannig á árinu 1951 tvöfalt meiri en hún
hafði verið árið 1940. í Póllandi var samsvarandi aukning 190%,
í Tékkóslóvakíu 70%, í Ungverjalandi 150%, í Rúmeníu 90%, í
Búlgaríu 360% og í Albaníu hvorki meira né minna en rúmlega
400%. Iðnaðarframleiðslan í austurþýzka lýðveldinu var árið 1951
36% meiri en hún hafði verið á sama landsvæði fyrir styrjöldina.
Landbúnaðarframleiðslan í öllum þessum ríkjum óx einnig mjög
verulega á þessum tíma. Þannig varð hveitiframleiðslan í Sovét-
ríkjunum árið 1951 50% meiri en hún var árið 1940. í Búlgaríu
var heildarframleiðsla landbúnaðarins 50% meiri en hún var fyrir
styrjöldina og 25% meiri í Ungverjalandi.
Sömu sögu er að segja frá Kínaveldi. Á árinu 1951 var iðnaðar-
framleiðslan þar í landi tvöfalt meiri en hún var árið 1949. Kom-
uppskeran varð 128% meiri og baðmullaruppskeran 252% meiri.
Þrátt fyrir það að framleiðslan hefur aukizt svo mjög þá hafa
þessi ríki ekki átt í neinum vandkvæðum með að afsetja þessar
afurðir sínar. Sölukreppur eru þar óþekkt fyrirbrigði. Kaupgeta
almennings vex nefnilega jafnframt framleiðsluaukningunni, en
það er eitt aðaleinkennið á hagkerfi sósíalismans. Kaupgetan hefur
vaxið bæði með beinum kauphækkunum og með stórfelldum lækk-
unum á vöruverði.
Sem dæmi um hina vaxandi framleiðslu og sölu í ríkjum sós-
íalismans má taka algengar neyzluvörur eins og kjöt og smjör.
Árið 1951 var framleiðsla og sala á kjöti í Sovétríkjunum 709.000
tonnum meiri en hún var árið 1946 og á smjöri var aukningin
132.000 tonn. í Bandaríkjunum minkaði hinsvegar salan á sama
tíma á kjöti um 437.000 tonn og á smjöri um 281.000 tonn.
Allir vita hvernig samskiptum á milli auðvaldsríkja er háttað.
Sérhagsmunir hvers ríkis sitja í fyrirúmi, hver skarar eftir
megni eld að sinni köku. Voldugu ríkin kúga þau sem eru minni
máttar. Nærtækasta dæmið fyrir okkur íslendinga eru tilraunir
Bretlands til að kúga okkur í landhelgismálinu með því að beita
löndunarbanninu.
Samskipti sósíalistisku ríkjanna innbyrðis er með allt öðrum
hætti. Þau byggjast á jafnrétti og virðingu fyrir sjálfstæði hvers
ríkis fyrir sig, hvort sem um stórt ríki eða smátt er að ræða.
5