Réttur


Réttur - 01.01.1953, Blaðsíða 74

Réttur - 01.01.1953, Blaðsíða 74
74 RETTUR VII. Engin þjóð í víðri veröld er eins háð utanríkisviðskiptum og við íslendingar. Ástæðan er auðvitað sú, að land okkar er snautt af mörgum þeim þýðingarmestu gæðum, sem nauðsynleg eru til þess að hægt sé að lifa menningarlífi. Við þurfum að flytja til landsins kol, olíur, timbur, vörur framleiddar úr málmum, efna- vörur, vefnaðarvörur, korn og margskonar matvæli. Útflutningsframleiðsla okkar er þar á móti mjög einhæf. Und- anfarna áratugi hafa sjávarafurðir numið um eða yfir 95% af heildarútflutningnum. Okkur íslendingum er því brýn nauðsyn að fylgjast vel með því er gerist á hinum tveim heimsmörkuðum. Og umfram allt er okkur nauðsyn á að hafa sem vinsamlegust viðskipti við sem flestar þjóðir. Tilvera okkar sem menningarþjóðar er beinlínis undir því komin. Þær ríkisstjórnir, er verið hafa við völd frá því að stjórn Stefáns Jóhanns var mynduð í ársbyrjun 1947, hafa síst af öllu haft þetta í huga. Þær hafa ekkert tillit tekið til þeirrar þróunar, er átt hefur sér stað á síðustu árum á erlendum vettvangi og þær hafa af ráðnum hug eyðilagt markað þann er áunnist hafði í Sovét- ríkjunum. Þær hafa rígbundið viðskipti okkar við hrörnandi markað hins kapitalíska heims. Fulltrúar Sósíalistaflokksins í nýsköpunarstjórninni komu því til leiðar, að samningarnir 1946 og 1947 við Sovétríkin voru gerðir. Síðan hafa sósíalistar æ ofan í æ bent á hve hættuleg núverandi stjómarstefna væri fyrir efnahagslegt sjálfstæði þjóð- arinnar. Þeir hafa hvað eftir annað komið fram með tillögur til úrbóta, m. a. tillögur um afnám á þeirri einokun, sem nú er á útflutningi landsmanna. En allt hefur komið fyrir ekki. Hjá þríflokkunum, íhaldinu, framsókn og krötum, hefur þjóðarhagurinn verið látinn víkja fyrir vilja hinna bandarísku auðdrottna. Þessvegna er nú svo komið, að í stað þess að íslenzkum sjómanni sé gert kleift að draga fisk úr sjó — eins og forfeður hans höfðu gert um aldir —, í stað þess að íslenzkur bóndi fái að rækta jörðina og huga að skepnum — eins og tíðkast hefur frá upphafi íslands byggðar —, þá neyðist nú sjómaðurinn og bóndinn til að vinna hjá hinum bandaríska her. Þessi bandaríski her er nú orðinn stærsti at- vinnurekandi landsins, hernámsvinnan aðalatvinnuvegur þjóð- arinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.