Réttur - 01.01.1953, Page 77
BETTUR
77
menn 118 milljónir króna á ári. Og þessi upphæð eykst að sama
skapi, því meira sem unnið er og því fleiri verkamenn sem þarna
eru.
Ameríska auðvaldið græðir því nú, bara á þeim íslenzkum
verkamönnum, sem það nú hefur í þjónustu sinni, um 120 millj-
ónir króna á ári. Talað er um að það tvöfaldi bráðlega tölu verka-
mannanna. Ef, reiknað væri með 2500 verkamönnum eitt ár, en
rúmum 5000 verkamönnum annað árið, þá væri ameríska auð-
vaidið á þeim tveim árum búið að græða aðeins á þessum íslenzku
verkamönnum beinlinis allt það fé, sem það hafði „gefið“ okkur í
Marshallfé.
„Gjafir“ ameríska auðvaldsins eru því furðulegar gjafir. Auk
þess að vera endurgoldnar með frið og frelsi landsins, eru þær
svo beinlínis borgaðar til baka á skemmri tíma en þær voru
gefnar með auknu arðráni á verkalýðnum eftir kröfu Ameríkan-
anna sjálfra. \
2. íslenzkar framleiðsluvörur lækkaðar, ameriskar
einokunarvörur hækkaðar.
Við höfinn séð hve fljótt ameríska auðvaldinu tókst að græða
allar „Marshallgjafirnar“, bara á þeim íslenzkum verkamönnum,
aem það hefur í{ þjónustu sinni. — En það er ekki eina ránið.
sem það fremur.
Eftir stríð höfðu öll hráefni í heiminum hækkað. Verðhækkun
hráefnanna, sem þjóðir í nýlenduaðstöðu aðallega framleiða, var
einskonar uppreisn nýlenduþjóðanna á verðlagssviðinu. Það er
hinsvegar aðalatriðið í arðráni því, sem stóriðjuhringar heimsins
lifa á, að kaupa hráefni og matvörur ódýrt af nýlenduþjóðum
eða stéttum í svipaðri aðstöðu — og arðræna þær þannig, — en
selja svo neytendum stóriðjuvörurnar, sem þeir láta verkamenn
vinna úr hráefnimum í verksmiðjum sínum, dýrt og koma þannig
í fé þeim verðmætisauka, sem vinnan skapar. Einokunarauðvald
stóriðjunnar arðrænir þannig í senn hráefna- og matvörufram-
leiðendur, verkamenn og neytendur.
Höfuðstefna Marshall-pólitíkinnar á efnahagssviðinu var aí
tryggja þessa arðránsaðstöðu til fulls og í þetta sinn einoka hana
sem mest fyrir bandaríska auðvaldið.
Ameríska auðvaldið arðrænir nú íslendinga bæði sem mat-
vöruframleiðendur, verkamenn og neytendur. Gróða þess á íslenzk-
um verkamönnum höfum við þegar séð ofurlítið af.