Réttur - 01.01.1953, Qupperneq 81
RÉTTUR
81
En var samt ekki þjóðhagslega séð hagnaður .að því að fá þann
gjaldeyri, sem fólst í Marshallgjöfunum, mun þá einhver spyrja.
Sem svar við því nægir að benda á að með því að hagnýta til fulls
þá markaði, sem leppstjórnin hefur lokað að meira eða minna leyti
samkvæmt Marshallstefnunni, hefðum við getað framleitt á ári
hverju verðmæti fyrir allt að 200 milljónum króna meira en fram-
leitt var, bara með fullri hagnýtingu togaranna einna saman.
Hið beina fjárhagslega tap af því að þiggja marshallgjafirnar með
þeim skilyrðum um óhappastefnu í viðskiptamálum, sem þeirn
hafa fylgt, liggur því í augum uppi.
Það hefði því verið beinn þjóðhagslegur ávinningur að hafna
Marshallstefnunni, en reka fiskframleiðslu okkar af fylsta þrótti
og undirbyggja myndun stóriðju samtímis því, sem virkjanimar
við Sog og Laxá voru gerðar, — eins og Sósíalistaflokkurinn hafði
lagt til í sínum ýtarlegu tillögum um stjórnarstefnu í nóv. 1946
(Prentaðar í Rétti 1946. 30. árg. bls. 81—98).
í þriðja lagi: Þótt rafmagnsnotendum sé gert rafmagnið dýrara
en ella hefði þurft að vera með Marshallpólitíkinni, þá heimtar
samt ameriska auðvaldið og ríkisstjómin það að ráða, hvemig
það sé notað, og afleiðingin af því er að strax verður að hefjast
hana um nýja virkjun í Soginu eða láta rafmagnsnotendur í
Reykjavík og sunnanlands skorta rafmagn, eða greiða það miklu
hærra verði en ella þyrfti.
Skal þetta nú skýrt nánar:
Sogsvirkjunin nýja (írafossstöðin) framleiðir 31.000 kilowött
eða um 200 milljónir kílowattstunda á ári. Gamla Ljósafossstöðin
framleiddi 15.000 kilowött eða um 107 milljónir kílowattstunda á
ári (reiknað með í kringum 7000 stunda notkun að meðaltali og:
er það hátt, hinsvegar getur áburðarverksmiðjan nýtt rafmagnið
8640 stundir, þ. e. 24x360). Ljósafossstöðin kostaði á sínum tíma
15 milljónir króna eða um 80 milljónir króna með núverandi verð-
lagi. Nýja stöðin kostar um 165 milljónir. Sú gamla var reist á
erfiðum tímum af eigin ramleik, án gjafa. Getur hver maður séð„
hvort íslandi var ekki miklu auðveldara að reisa írafossstöðina.
miðað við núverandi tækni vora og auð, en það var að reisa Ljósa-
fossstöðina 1936 og síðar. Bara það hve miklu minna vinnuafl þarf
nú þótt um stærri stöð sé að ræða, sýnir hve miklu auðveldara
það er. Við byggingu Ljósafossstöðvarinnar þurfti að staðaldri um
200 menn, en við byggingu írafossstöðvarinnar aðeins á 2. hundraðl
Af því rafmagni, sem írafossstöðin framleiðir fær áburðarverk-
smiðjan að staðaldri sem lágmark 4000 kilowött, en mun alls nota
6