Réttur


Réttur - 01.01.1953, Side 82

Réttur - 01.01.1953, Side 82
82 RETTUR upp undir 130 milljónir kilowattstunda á ári, af því hún notar alla afgangsorku Sogsvirkjunarinnar. Það er að vísu mjög hag- kvæmt fyrir Sogsvirkjunina sem fyrirtæki og líka mjög gott fyrir áburðarverksmiðjuna, enda sá grundvöllur sem hún byggir á alla framleiðslu sína. Afleiðingin af því hve mikið áburðarverksmiðjan fær af raf- magni, er að eftir þrjú ár, eða 1956—7 verður að líkindum ef ekki er komin ný virkjun orðinn rafmagnsskortur í Reykjavík og á Suðurlandi, þannig að ef fullnægja ætti þörfum rafmagnsnotenda, yrði þá að fara að reka olíustöðina í Reykjavík aftur með fullum krafti dag hvern til framleiðslu á dýru rafmagni, í stað þess að nota hana bara sem „toppstöð" eins og hún var hugsuð til. Slíkt væri bæði þjóðhagslega séð og fyrir rafmagnsnotendur ákaflega óheppilegt, því framleiðsla rafmagns úr slíkri stöð kostar yfir 25 aura kilowattstundin, en hinsvegar fær áburðarverksmiðjan a£- gangsorku á verði sem er 1—2 aurar á kilowattstund. ítáðið til þess að koma í veg fyrir að svona fari, er að byggja þriðju og síðustu stöðina við Sogið, við Efri fossana, þannig að hún yrði tilbúin veturinn 1956—-’7. En ganga verður út frá því að það taki þrjú ár. Þessvegna flutti ég á Alþingi í vetur tillögu um láns- heimild að upphæð 90 milljónir króna til þessara virkjana, en það er áætlaður kostnaður við þá stöð, og sýndi fram á hver nauðsyh væri á því að hún væri samþykkt nú þegar. Þessi tillaga var felld. Stóð Sósíalistaflokkurinn einn með henni. En raunverulega var það bygging áburðarverksmiðjunnar, sem gerði það óhjákvæmilegt að hraða fullvirkjun Sogsins. Og það er nauðsynlegt að menn geri sér ljóst, hvað af því hlýzt að tengja áburðarverksmiðjuna við Sogsvirkjunina án fyrirhyggju um fleiri virkjanir nógu fljótt. (Sósíalistaflokkurinn lagði til strax 1947 að reisa stærri áburðarverksmiðju og virkja Urriðafoss í Þjórsá). Ef áburðarverksmiðjan hefði átt að reisa stöð handa sjálfri sér, hefði þurft virkjun, er framleiddi 15—16.00 kilowött og kostaði 90-—100 millj. króna. Það er vart ofmælt að helmingur alls kostn- aðar við Sogsvirkjunina sé handa áburðarverksmiðjunni, — eða að það að virkja þurfi strax aftur og hafa þá virkjun fullbúna 1956, sé vegna áburðarverksmiðjunnar. En hvað borgar svo áburðarverksmiðjan fyrir það rafrnagn, sem hún fær? Hún mun borga um 3—4 milljónir króna á ári. Eins og menn sjá hrekkur það ekki fyrir vöxtum af því fé, sem hefði þurft að setja í virkjun, ef virkja hefði átt fyrir áburðar- verksmiðjuna eina (5Vz% af 90—100 milljónum).

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.