Réttur - 01.01.1953, Page 84
84
RETTUR
höfunum: Ríkið útvegar allt fé að láni og 6 millj. kr. í hlutafé, en
einkaaðilar aðeins 4 millj. kr. hlutafé.
3. Þegar rætt er um að byggja áburðarverksmiðjuna suður á
Hvaleyri, koma liðsforingjar úr ameríska hernum til að skoða
staðinn. Undarlegur áhugi amerísks hervalds fyrir ísl. landbúnaði.
4. Þegar sótt er um leyfi til Washington fæst strax leyfi til þess
að byggja áburðarverksmiðju, en samtímis er neitað um sements-
verksmiðju, fyrst um sinn að minnsta kosti.
5. Þegar farið er að undirbúa byggingu, kemur í ljós að eins og
framleiðslan er hugsuð er hún það skyldasta sprengiefni, sem
áburðarframleiðsla getur verið. Eftir harðar blaðadeilur, einkum
frá Þjóðviljanum, fæst staður ákveðinn með tilliti til þesarar
sprengihættu, og áburðarverksmiðjustjórnin lofar að framleiða
fleiri tegundir.
6. Þegar farið er að vinna við byggingu áburðarverksmiðjunnar,
kemur upp grunur um að amerískt eftirlit sé haft bak við tjöldin
með ráðningu verkamenna, til þess að hafa áhrif á stjórnmála-
skoðanir þeirra.
7. Sú stofnun, sem ameríska auðvaldið notar einkum til yfirráða
yfir efnahags málum Islands, Alþjóðabankinn, sendir mann til
íslands. Sá maður útbýr frumvarp um Framkvæmdabanká, sem
ameríska auðvaldið fyrirskipar rikisstjórninni að samþykkja. í því
frumvarpi er ákveðið að ríkið skuli afhenda Framkvæmdabank-
anum öll hlutabréf sín í áburðarverksmiðjunni, að upphæð 6
milljónir króna.
8. Benjamín Eiríksson, formaður bankamálanefndar, nú orðinn
bankastjóri Framkvæmdabankans, lýsir því yfir við fjárhagsnefnd
efri deildar Alþingis að hann hugsi sér að Framkvæmdabankinn
selji hlutabréf þessi einkaaðilum.
9. Með frumkvæmd á þessari fyrirætlun væri áburðarverk-
smiðjan komin öll á hendur einkaaðilja, sem með því að kaupa alls
hlutabréf á 10 milljónir króna, eignast fyrirtæki, sem kostar yfir
100 milljónir króna.
Það tókst sakir árvekni Sósíalistaflokksins að hindra framkvæmd
þessa verks fyrir kosningar. En þeir menn, sem hér eru að verki,
ætla sér áreiðanlega að „fullkomna verkið" eftir kosningar.
Því það er auðséð að hér er á ferðinni samsæri innlendra og
erlendra manna að ná áburðarverksmiðjunni úr eign íslenzka
ríkisins og í eign nokkurra íslendinga, sem ameríska auðvaldið
hefur velþóknun á. Og amerískir auðmenn beita bakvið tjöldin
áhrifum sínum til þess að ná þessu takmarki.