Réttur


Réttur - 01.05.1965, Side 11

Réttur - 01.05.1965, Side 11
u E T T U R 75 um. — Barnaskólar eru þríseltir. — 13 ára drengir deyja af slysjörum í erfiðri vinnu. — 60—70 stunda vinnuþrœldómur- inn á viku sviptir hundruð verkamanna tómstundum lil menn- ingar og þroska. Er engin ástæða til að taka hlutina alvarlega? A boðskapurinn bara að vera: Drekkið og dansið! Byggjum veizluboí og braskara- ballir! Skemmtum okkur! Stígum dansinn kringum gullkálfinn á meðan það varir! Það er mjög líklegt að þessi orð séu töluð út úr hjarta íslenzkrar borgarastéttar. Hinn skattfrjálsi peningaaðall íslahds hefur aldrei víðsýnn verið og sjaldan hjartahlýr. „Mórallinn", sem hann boðar daglega er raunverulega þessi: „Drekkum og dönsum, — látum vinnulýðinn þræla, — látum ríkisbankana lána oss, — látum al- þýðuna borga, — fyllum hana með hugmyndum um að þjóðfé- lagið þoli ekki neitt annað en þrældóm hennar og gróða vorn, — annars farisl það, — og látum skáidin segja fólkinu í fagurri lisl að taka ekki hlutina alvarlega, ekki hugsa, bara syngja, dansa og drekka.“ Og er máske ástandið á andlega sviðinu, aðbúnaðurinn að lista- mönnum, svo miklu betri en var á undangenginni öld, miðað við auð og velsœld núverandi þjóðskipulags, að sjálfsagt sé að vera 5ara ánægðir með allt og taka hlutina ekki „alvarlega?“ Er það til meiri sóma nú, að Sigurjón myndhöggvari hefur orðið að búa og vinna í bragga mestalla sína tíð, en hilt hvernig Sigurður Breiðjjörð dó? Hvaða verkefni veitir þjóð- félagið ágœtum málurum og myndhöggvurum, meðan hundr- uðum milljóna er henl í prjál og verzlunarhallir? Eru skálda- laun Alþingis elcki slílc smán, að „heiðurslaunin“ haja rétt jafnasl á við skáldaslyrk hins játœka Islands aldamótanna lil Þorsteins Erlingssonar, sem þótti þá smán og var það? Hvað um það ríki, sem lirófar upp ónotuðum embœtlisbústöðum fyrir milljónir, en svíkst um Kjarvalshús? Samsvarar Há- skóli Islands hugsjónum brautryðjendanna? A þjóð Snorra að líla á Krislján Alberlsson sem sagnaritara 20. aldarinn- ar, þar sern ríkið hefur raunverulega kostað hann til. skrift- anna, en ýtt fœrustu sagnriturum sínum út í sálardrepandi kennsluþrœldóm? Er ekki tildur og hégómi að gagnsýra þjóð- líf vort, og eklci síst hina íslenzku kirkju?

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.