Réttur


Réttur - 01.05.1965, Side 48

Réttur - 01.05.1965, Side 48
112 R É T T U R undirbúningi undir ákveðið lífsstarf er námsmaðurinn að inna af höndum vinnu í þágu þjóðfélagsins. Að sjálfsögðu yrði að búa svo um hnútana, að námslaunin yrðu ekki landeyðustyrkur í fram- kvæmdinni, heldur yrðu námsmenn að stunda nám sitt með ár- angri til að' geta orðið þeirra aðnjótandi. Upphæð launanna færi eftir efnum og ástæðum samkvæmt nánari reglum, og gjarnan mættu þau fara hækkandi, eftir því sem áfram miðar með námið. Nú segja margir: Ilvað svo, ef menntamenn vorir flykkjast úr landi, þangað sem greitt er hærra kaup, eftir að þjóðfélagið lief- ur kostað nám þeirra? Eiga Islendingar að taka að sér að mennta ókeypis sérfræðinga handa öðrum þjóðum? Auðvitað má slá þann varnagla, eins og gert var í tillögu Einars Olgeirssonar, að launin hreytist í lán, ef viðkomandi vill ekki starfa í landinu að námi loknu. (Vandlega skyldi þó gefa gaum að því, að sá sem starfar um liríð erlendis kynnist þar nýjum vinnu- brögðum og viðhorfum, sem hann flytur heim með sér og oft geta komið að gagni). Sú krafa verður að teljast félagslega réttmæt, að það þjóðfélag, sem hefur hjálpað mönnum að afla sér menntunar, eigi að njóta starfskrafta þeirra og hæfileika, ef engar sérstakar ástæður eru fyrir húsetu erlendis, s.s. hjúskaparástæður o. fl. Og þeirrar jjjóðhollustu verður að krefjast, að menn ekki skelli hælum í rass, jrótt í boði séu hærri laun í jrjóðfélögum, sem eru auðugri en hið íslenzka og leyfa sér margfalt manngreinarálit á við oss. En er menntamönnum vorum láandi, þótt þeim þyki slíkar kröfur nokkuð hjáróma, meðan þeir eru álitnir undirmálsmenn í saman- hurði við allkyns kaupsýslu- og hrasklýð’, sem ekki fær réttlætt til- veru sína með neinu félagslegu hlutverki, en þrífst |)ó eins og flugur á skithaug?

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.