Réttur - 01.01.1933, Blaðsíða 1
VERKALÝÐSVÍSUR.
Eftir Halldór Stefánsson.
Fellur ryS á foma hlekki,
fölva slær á hélgan dóm,
þrældómsorðið: þú skalt ekki,
þokar f yrir nýjum hljóm:
þú slcalt taka þitt og velta
því, sem fyrr þér kúgun bjó.
Þér er engin þörf að svelta,
þessi jörð er nógu frjó.
Þitt er valdið, verlcamaður,
vinna þín skóp heimsins auð,
þar er sérhver -stund og staður
striti þínu merkt og nauð.
Laun þín eru lygamenning,
lög, sem tryggja fáum allt,
hungurbótin heilög þrenning,
hvergi skjól ef þér er kalt.
Þitt sé takmark þinni að ráða,
þroskabraut og öllum hag,
þii átt rétt og skyldu skráða
skorinort við nýjan dag:
Legg með anda og efldum höndum
auðvaldsskipulagið dautt.
Öreigar í öllum löndum
upp með frelsismerkið rautt!