Réttur - 01.01.1933, Blaðsíða 4
stríðskommúnismans. I>að er augljóst, að á þeim ár-
um gat ekki verið um að ræða uppbyggingu sósíalism-
ans. —
Árið 1921 mátti heita, að Rússar væru búnir að
hreinsa landið að hinum hvítu herjum gagnbylting-
arinnar. Á því ári hefst nep-tímabilið, tímabil hinn-
ar ,,nýju ökónómísku stefnu“. Stefna þessi var í því
fólgin, að verzlunin var á ný gefin frjáls og einka-
auðmagninu fengnar nokkrar ívilnanir, þó auðvit-
að innan þeirra takmarka, sem öryggi öreigaalræð-
isins hlaut að afmarka. Fyrsta tímabil nep-stefnunn-
ar var í eðli sínu nauðsynlegt undanhald, meðan ver-
ið væri að safna kröftum eftir borgarastyrjöldina,
en enginn ósigur. Og þegar á næsta ári eru bolsi-
vikkar orðnir svo fastir í sessi, að þeir geta stöðvað
þetta undanhald. Þar með byrjar viðreisnartímabil
þjóðarbúskaparins. Hér er þó enn ekki um beina
sósíalistiska uppbyggingu, að ræða, heldur er verið
að reisa úr rústum það, sem hrunið hafði og eyði-
lagzt á árum stríðsins og borgarastyrjaldarinnar.
1928 er þessu viðreisnartímabili lokið. Þá er fram-
leiðslan í flestum greinum komin á sama stig eða
hærra en 1913. Og nú er hægt að byrja fyrir al-
vöru á uppbyggingu sósíalismans.
Með 1. október 1928 hefst framkvæmd 5 ára á-
ætlunarinnar, sem er ekki annað en fyrsti liðurinn í
enn almennari 15 ára áætlun. Hlutverk fyrstu 5 ára
áætlunarinnar var, sem sagt, að leggja grundvöllinn
að hinu sósíalistiska skipulagi. En hvað er fyrst og
fremst nauðsynlegt, til þess að hægt sé að segja, að
slíkur grundvöllur sé lagður?
5 ára áætlunin á sviði iðnaðarins.
Verkalýðurinn tók við Rússlandi úr höndum keis-
arastjórnarinnar, úr höndum aðalsins og auðvaldsins
rússneska. Þá var það fátækt bændaland, sem orðið
hafði um 100 ár aftur úr í auðvaldsþróuninni. Marx
4