Réttur - 01.01.1933, Blaðsíða 43
LOFTVOGIN VÍSAR Á STORM
Eftir Wilhelm Knorin.
Loftvog- hinnar alþjóðlegu verklýðshreyfingar vísar
á ofviðri. í hverjum einasta mánuði, meðan kreppan
varir, skelfur og nötrar skipulag heimsauðvaldsins af
ógnandi krafti ægilegs hernaðar ósigurs. Auðvalds-
skipulagið er að fullu orðið rammvilt í völundarhúsi
.sinna eigin mótsetninga. Framleiðsluöflin hafa gert
hatramma uppreisn gegn framleiðsluháttum auðvalds-
skipulagsins. Eymd og örbirgð, sultur og atvinnuskort-
ur fylkja hinum vinnandi fjölda til atlögu gegn auð-
valdinu. Hinn stórfenglegi árangur uppbyggingar sós-
íalismans í ráðstjórnarríkjunum, hinn glæsilegi árang-
ur fyrstu 5 ára áætlunarinnar, vísar hundruðum milj-
óna alþýðu allra landa veginn til sósíalismans. Gegn
hruni og öngþveiti auðvaldsskipulagsins og hinum ógn-
andi ofsóknum fasismans gegn vinnandi alþýðu hvet-
ur Alþjóðasamband kommúnista (A. K.) verkalýð allra
landatil samstilltrar baráttu fyrir alræði öreiganna, fyrir
afnámi einstaklingseignaréttar á framleiðslutækjum um
allan heim og fyrir umsköpun þjóðfélagsins á sósíalist-
iskan hátt.
Kenningarnar um byltinguna og baráttuaðferðir
hinna stórbrotnustu hugsuða og byltingafrömuða
mannkynssögunnar, Marx, Engels og Lenins, sem leiddi
til hins glæsilega sigurs vinnandi alþýðu ráðstjórnar-
ríkjanna, eru alvarleg hvatningtil starfs og athafna fyrir
hundruð milljóna öreiga, nýlendnanna og hálfnýlendn-
anna, þjóðanna, sem undirbúa hið eina réttláta stríð,
sem er stríð hinna kúguðu gegn kúgurunum. For-
ingi fjöldans í þessum hildarleik byltinganna er Al-
þjóðasamband kommúnista, hinn „alþjóðlegi flokkur
verklýðsuppreisnanna og alræðis öreiganna". (Ávarp 2.
þings A. K.) sem „fylkir hinum byltingasinnaða verka-
lýð undir merki sín, sem leiðir miljónir hinna kúguðu
43