Réttur - 01.01.1933, Blaðsíða 2
Fyllcing snav/Jra, föstum skrefum
fram til alheimsbyltmgar,
stæltum vilja, sterkum hnefum
stofna ríki sameignar,
þar sem allir athvarf hljóta,
engum stjakað verður frá,
allir jafnt að neyta og njóta
nautna og gæða lífsins fá.
Þá með frelsi þér slcal goldin
þrælkun löng og unnið starf,
þú skalt seðjast meðan moldin
mannkyn nokkurt fæða þarf.
Meðan regn og röðull fríður
ráða gróðri á jörðu hér
skal þín vinna, verkalýður,
vera blessun sjálfum þér.
5 ÁRA ÁÆTUNINNI LOKIÐ
Á 4 ÁRUM.
Eftir Björn Franzton.
Með árinu 1933 hefst nýtt tímabil í sögu rússnesku
byltingarinnar. 5 ára áætlunin hefir verið framkvæmd
á 4 árum, jötunauknasta fyrirtæki mannkynssögunn-
ar er lokið með glæsilegum árangri. Þar með er búið
að leggja hinn endanlega grundvöll að skipulagi sósí-
alismans. Áður var sósíalisminn ekki annað en kenn-
ing, að vísu byggð á vísindalegri rannsókn staðreynd-
anna, veruleikans í þjóðfélaginu. En til þess að hafa
fullan rétt til að vera sannfærður um framkvæman-
leik sósíalismans varð maður að vera þaullesinn í
Marxismanum, kenningunni um þróun auðvalds-
2