Réttur - 01.01.1933, Blaðsíða 59
tæk, fé og eigiium verklýSshreyfingarinnar er stolið, 80 kommún-
istiskir þingmenn í ríkisþinginu eru sviftir þingmannaréttindum og
5 miljónir verkamanna á þann hátt rændir öllum pólitískum réttind-
um. 30. þús. sósíaldemokratiskra og kommúnistiskra verkamanna og
verkamannafulltrúa sitja í fangelsum nasistanna og eru þar ofur-
sseldir hinum hryllilegustu miÖaldapyndingum. Vopnaður fa-ista-
skríll ræöur lögum og lofum í verkamannahverfum, brýst inn í íbúS-
ir verkamanna og tokur konur þeirra og börn sein gísl, ef ekki tekst
-að hafa hendur í hári þeirra sjálfra. Pólitískir starfsmenn verkalýSs-
hreyfingarinar, þeir, sem ennþá ganga lausir, verSa að fara liuldu
höíði, því að heimili þeirra era umsetin af nasistum. Verkamenn
■eru myrtir daglega, síðan Hitler tók við stjórn liafa 247 verkamenn
verið drepnir, að því er lögregluskýrsla til stjórnarinnar hermir.
Ógnarstjórn fasismans kemur ekki aðeins niður á verkamönnum,
heldur eru vísindamenn og menntamenn, sem á einn eða annan hátt
istanda nærri verkalýðshreyfingunni, ofsóttir og fangelsaðir misk-
unnarlaust. Merkilegum vísindastofnunum, eins og t. d. „Institut
í'iir Sozialforsehung“ í Frankfurt am Main er lokað, vegna þess að
það á að vera „marxistiskt“. Dýrmæt bókasöfn einstakra manna,
’bókaeignir verkalýðshreyfingarinnar eru brendar á béli í „þriðja
ríkinu“, ríki hinna brúnklæddu brennuvarga. Jáfnvel úr opinber-
um bókasöfnum ríkisins, landanna og skólanna hafa þessir fjendur
allrar menningar látið sér sæma að taka og leggja á bál allar „marx-
istiskar" bækur, en svo kalla þeir allt það, sem ber einhvern keim af
frjálslyndi í skoðunum eða þykir ekki nægilega mettað prússneskum
hernaðaranda.
Gyðingaofsóknir slíkar, sem ekki þekkjast dæmi til síðan á mið-
öldum eða í Rússlandi keisarastjórnarinnar, eru skipulagSar af
:stjóminni og liði hennar um allt Þýzkaland. Þúsundir Gyðinga eru
sviftir atvinnuréttindum, stúdentum af Gyðinga-ættum er meinað-
ur aðgangur að háskólum og öðrum menntastofnunum, heimsfrægir
vísindamcnn, sem varpað liafa Ijóma á þýzka menningu, eins og t. d.
Einstein, verða að flýja land. Auðvitað koma þessar ofsóknir að-
allega niður á fátækari Gyðingum ]jví að ekki er skert hár á liöfði
bankastjóra og auðmanna af Gyðingaættum, end'a hafa sumir þeirra
rstutt lireyfingu Iíitlers með fé.
I skólana heldur kynflokka- og þjóðahatrið innreið sína í sama
mundl og kristindómskennslan er aukin og gerð að skyldunámsgrein.
Menningarlegt afturhald og germönsk villimennska haldast þann-
ig í hendur undir liinni brúnu ógnarstjórn.
Þessi ægilegu tíðindi, sem hér liefir verið lýst að nokkru eru al-
varleg viðvörun verkalýðs um heim allan og öllum frjálslyndum
mönnum, sem ekki vilja liorfa þegjandi á þaS, að þýzk verkalýSs-
hreyfing sé troðin undir fótmn af hinum fasistisku villidýram, aS
59