Réttur


Réttur - 01.07.1974, Page 6

Réttur - 01.07.1974, Page 6
Vinstri stjórnin 1971—’74. Frá vinstri til hægri við borðið: Halidór Sigurðsson, Hannibal Valdimarsson, Einar Ágústsson, Ólafur Jóhannesson, Lúðvík Jósepsson, Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ólafsson. Við borðsendann Kristján Eldjárn forseti og Guðmundur Benediksson ráðuneytisstj. forsætisráðuneytisins. (Myndin tekin í júlí 1971). Ólafur Jóhannesson viðurkenndi að stjórn- armyndun lokinni að hann væri fyrsti stjórn- málamaðurinn, sem myndaði stjórn fyrir ann- an mann! Margt réði því að Framsókn af- henti íhaldinu stjórnarforusmna og er talið að þar hafi meðal annars komið til haturs- afstaða Björns Jónssonar í garð Ólafs, og hafi Björn látið það berast í gegnum Geir Hallgrímsson að miklum mun líklegra yrði að hann gæti rætt við íhaldið en Ólaf! I annan stað og nátengt þessu er áhugi Sjálf- stæðisflokksins á því að fá Alþýðuflokkinn með í stjórnina þó síðar verði. Framundan er hörð barátta við þá ríkis- stjórn sem nýlega hefur verið mynduð. Menn geri sér fyllilega Ijóst að stjórnarforusta íh.aldsins svífst einskis. Þeim mun skemmri tíma sem þessi stjórn fær að ráða þeim mun betra. Það verður styrkur Alþýðubandalags- ins og verkalýðshreyfingarinnar sem ráða mun úrslitum um valdatíma þessarar stjórnar, 142

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.