Réttur


Réttur - 01.01.1978, Síða 1

Réttur - 01.01.1978, Síða 1
lettur 61. árgangur 1978 - 1. hefti Stjórnmálaátökin standa um það í sumar hvort starfandi stéttir landsins - verklýðs- og starfsmannasamtök þeirra og þeir flokkar, er þeim fylgja, hafa stórhug og styrkleik, áræði og einingu, til þess að gersigra kúgunaröfl yfirstéttarinnar í kosningum og mynda - máske með þeim aðilum öðrum, er vit og manndóm sýndu - þá ríkisstjórn, sem hefði til að bera það áræði og þá visku, sem þarf til að ráða við efnahagsvandamál íslands. íslensk burgeisasiétt hefur - að örfáum einstaklingum hennar undan- skildum - aldrei haft vit eða vilja, framsýni eða þor, til að stjórna atvinnu- lífinu eins og þurft hefur á hverju skeiði nútímans: Þegar nýbyggingarráð hafði ákveðið 1945 að láta smíða strax 30 dísil- togara í Englandi, kvaðst Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda vilja bíða í Wz ár, þá yrði verðið fallið, og eingöngu kaupa kolatogara! Þegar nauðsynlegt var að byggja hraðfrystihús á hentugum stöðum, vegna nýsköpunarflotans, kostaði það ýmist áratugs baráttu sósíalista að koma þeim upp - eins og á Akureyri - eða afturhaldsvaldið í Reykjavík lét stækka fiskimjölsverksmiðju inn á Kletti og einstakur atvinnurekandi varð að byggja hraðfrystihús úti á Seltjarnarnesi, af því áætlun nýbyggingarráðs um byggingu stórs hraðfrystihúss og fiskimjölsverksmiðju hlið við hlið á Grandagarði var eyðilögð af afturhaldsöflunum. Þegar sósíalistar í vinstri stjórn 1958 stækkuðu fiskveiðilandhelgina í 12 mílur, ætlaði afturhaldið, lafhrætt við Nato, af göflum að ganga - og þegar það hafði bolað vinstri stjórn frá, en þorði ekki að svíkja 12 mílurnar, gerði það óuppsegjanlegan samning við Breta um að stækka aldrei framar land- helgina, nema þá með leyfi þeirra og Haagdómstólsins. - Sósíalistar og samvinnumenn á Alþingi hótuðu þá - 1961 - að rifta þeim samningi, þegar þeir fengju vald til - og gerðu það 1971. - Því er nú fiskveiðilögsaga íslands 200 mílur. íslenskir burgeisar og braskarar hafa hindrað að sú eðlilega þróun auð- valdsskipulagsins að sameina rekstur í æ stærri fyrirtæki, fengi að gerast hér í einka- og ríkisrekstri. Þeir viðhalda þrem olíufélögum, ótal trygginga- félögum, margföldum bílaumboðum, of mörgum bönkum, hundruðum heild- UANOSBÓK ASiAf N 3 519 c i ÍSIANDS

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.