Réttur - 01.01.1978, Blaðsíða 6
takan í aðgerðum með þessum hætti sýn-
ir vel hve fólk leggur mikla áherslu á að
það er staðráðið í að sækja fram til sig-
urs.
Því er mjög á lofti haldið að þátttakan
hafi verið mikil hér í Reykjavík. Það er
rétt, en við megum ekki gleyma því að
þátttakan var einnig mjög mikil víða úti
á lancli, á nokkrum stöðum var um al-
gera vinnustöðvun að ræða. Það er frek-
ar óvenjulegt að slíkt takist á 1. og 2. degi
slíkra aðgerða, en í þetta sinn tókst semsé
að stilla alla þætti mjög vel saman.
Vilji verkalýðshreyfingarinnar og allra
samtaka launafólks til þess að brjóta hin
hróplegu rangindi á bak aftur er því
greinilega í hámarki. Og menn skulu
gera sér ljóst að baráttan getnr brotist út
með einbeiltum aðgerðum af margvis-
legu tagi.
Eðvarð: Það ber einmitt þannig upp
á, að þú ræðir við okkur á sama degi og
hafnarverkamenn í Reykjavík efna til
tveggja tíma vinnustöðvunar. Með þeim
tókst frábær samstaða sem náði til allra
fyrirtækja við höfnina í Reykjavík.
Verkamennirnir komu til vinnu klukk-
an átta í morgun, en höfðust ekki að
heldur biðu í kaffistofunni til klukkan
10. Með þessari aðgerð voru hafnarverka-
menn að undirstrika mótmæli sín við
kjaraskerðingarlögunum; í dag voru þeir
að fá fyrstu vikuna greidda á hinu skerta
kaupi. Þeir fengu aðeins sem svaraði til
38 klukkustunda launa miðað við samn-
ingana sem verkalýðshreyfingin fékk
fram í fyrrasumar - þarna vantaði semsé
tvo tíma upp á og verkamennirnir hvíldu
sig bara í tvo tíma í staðinn! Aðgerð
hafnarverkamanna sjálfra er aðeins dœmi
um það sem getur gerst hér og þar og að-
gerðin sýnir lika hve nauðsynlegt það er
að verkafólkið sjálft á vinnustöðunum sé
vel vakandi fyrir þeim möguleikum sem
hver og einn hefur til að láta til sin taka
i verlii.
Nú eftir 1. apríl renna samningarnir
út og þá geta samtökin að sjálfsögðu boð-
að til vinnustöðvunar með venjulegum
hætti. Hvernig því verður háttað er ekki
Ijóst núna, en aðgerðir geta brotist út
hvar sem er og hvenær sem er.
Benedikt: Framhaldsaðgerðir verða
vitanlega byggðar á því hve vel aðgerð-
irnar tókust 1. og 2. mars. í sambandi við
þær aðgerðir vil ég aðeins geta þess að
forsendur þess hve vel tókst til var hin
breiða samstaða samtakanna sjálfra, þar
sem, auk ASI-félaganna, komu við sögu
félagsmenn BSRB og BHM, og FFSÍ og
Samband bankamanna stóðu einnig að
undirbúningsaðgerðum.
Menn skynjuðu vel í þessum aðgerð-
um að samningarnir eru sameiginlegir
og vandi eins verður ekki leystur án þess
að vandi heildarinnar verði leystur jafn-
framt.
Það er ákaflega mikilsvert að rækja
þessa samstöðu sem best þannig að þræð-
irnir myndi órofa heild; það er vissulega
mikið starf til dæmis að lialda stöðugt
stóra 15-20 manna nefndafundi, en þetta
mikla starf skilar sér áreiðanlega þegar
fram í sækir.
R.: Af þessu verkfalli verða ekki ein-
göngu dregnar faglegar ályktanir - held-
ur einnig og ekki síður pólitískar.
Eðvarð: Það er rétt. Hér er um j)óli-
tíska aðgerð að rceða af hálfu rikisvalds-
ins til að skerða samninga sem verkalýðs-
hreyfingin hefur gert i fyllsta samrœmi
við leikreglur hins frjálsa samningsrétt-
ar. Andsvar launafólksins við þessum á-
rásum rikisvaldsins sýnir faglegan styrk
6