Réttur - 01.01.1978, Blaðsíða 27
að líta, einfaldaði baráttumönnum verkalýðs-
hreyfingar og sósíalisma að ýmsu leyti verk-
efni sitt. 1 þjóðfélagi atvinnuleysis og örbirgð-
ar mátti öllum vera ljós nauðsyn þjóðfélags-
byltingar. Hinu má svo aftur ekki gleyma, að
fátækt og atvinnuleysi leggst líka á marga eins
og þvingandi farg og lamar allt þrek og frum-
kvæði. Undir öllum kringumstæðum er þó
Ijóst, að í því þjóðfélagi bjargálna og sæmi-
legs efnahags, sem við nú búum við, eru
rnörgum miður Ijós en áður rökin fyrir því,
að nauðsyn beri til róttækrar umsköpunar
þjóðfélagsins. Yoldugir hagsmunaaðilar í
Þjóðfélaginu, sem ráða yfir öflugum áróðurs-
tækjum, halda því að mönnum, að engar
stéttaandstæður séu í íslenzku þjóðfélagi, og
við séum þar öll á sama báti. Jafnframt er
reynt að halda því að fólki, að aukin einka-
neyzla sé hið eina sáluhjálplega í þessum
heimi. Samtímis hefur það gerzt, að arðrán
auðstéttarinnar er betur falið en áður, og
gróðavegir brjóstmylkinga hennar krókóttari
°g órannsakanlegri en nokkru sinni fyrr. Við
slíkar aðstæður þarf engan að undra, þótt
sumir týni áttum. Allt hefur þetta lagt sósíal-
istum og verkalýðssinnum aukinn vanda á
herðar, og á þeim vanda er ekki til nein ein-
föld lausn. Eitt af því, sem leggja verður meg-
ináherzlu á, er að opna sem flestum innsýn
Jnn í gangverk auðvaldsskipulagsins, þannig
að þeim hinum sömu megi verða ljóst arð-
tans- og afsiðunareðli þess, og að það er
1 grundvallaratriðum fjandsamlegt heilbrigðu
mannlífi. Jafnframt verður að draga skýrt
fram, að hreyfing okkar stefnir að því að
hreyta þessu þjóðfélagi í grundvallaratriðum
°g byggja upp nýtt þjóðfélag annarrar gerð-
ar, þar sem samhjálp og jafnrétti eiga að sitja
1 fyrirrúmi, og framleiðsla og atvinnustarf-
semi verður skipulögð með það í huga fyrst
°g fremst að fullnægja raunverulegum þörf-
um, en ekki í því skyni að tryggja handhöfum
fjármagnsins gróða og aftur gróða. Við verð-
um að opna augu sem flestra launamanna fyr-
ir því, að í kapítalísku þjóðfélagi er hagur
þeirra aldrei tryggur til frambúðar, því að
þeir geta, þegar minnst varir, orðið fórnar-
lömb og leiksoppar sterkra afla, sem þeir hafa
engin tök á. Varanlegt afkomuöryggi launa-
manna verður aðeins tryggt í sósíalísku þjóð-
félagi, )>ar sem öll atvinnu- og framleiðslu-
starfsemi lýtur lýðræðislegri stjórn þeirra
vinnandi manna, sem verðmætin skapa. Við
hljótum einnig að leggja mikla áherzlu á að
auka samneyzluna, því að meiri líkur eru til,
að slíkar kjarabætur geti orðið varanlegar.
Síðast en ekki sízt verðum við að leggja á-
herzlu á að gefa lýðræðishugtakinu víðari
merkingu og færa það út á ný svið, því hvað
er sósíalismi rétt skilinn og rétt framkvæmdur
annað en lýðræði í öllum mannlegum sam-
skiptum og á öllum sviðum þjóðfélagsins?
Sigurður Ragnarsson
27