Réttur - 01.01.1978, Blaðsíða 53
karlmannsins. Þær líta svo á, að takmark-
ið sé að berjast gegn þessu þjóðfélagi,
brjóta það niður, en ekki að ávinna sér
nafn eða stiiðu innan þess.
Til dæmis er almennt vísað á bug svo-
kölluðu stjörnukerfi. Þessir femínistar
setja ekki eigið nafn undir greinar sínar
1 blöðum og tímaritum femínista, held-
ur hafa þær með sér samvinnu eða kerfi,
sem byggir á heildinni, hópvinnu, og
engin setur nafn sitt undir. Þær hafna
öllum hugmyndum um samkeppni, karl-
mannlegan glæsibrag, metnað og orðstír.
Friedan: Ætlið þér þá að hætta því að
setja eigið nafn undir ritverk yðar?
de Beauvoir: Sei, sei, nei, auðvitað ekki
vegna þess, að uppeldi mínu var á allt
annan veg farið. Eg hóf mína vegferð við
gerólíkar aðstæður, og það, sem ég hef
áunnið mér, ætla ég mér að nota. Aftur
á móti skil ég mæta vel þessar konur og
hef alla samúð með þeim, sem skrifa
nafnlausar.
Friedan: Ég held það myndi eyða áhrif-
um stjörnukerfisins, ef t. d. Simone de
Beauvoir og Betty Friedan væru svo
53