Réttur - 01.01.1978, Blaðsíða 66
Samsekt þýska hersins á grimmdar-
verkum þessum er óhrekjanlega sönnuð
í þessurn rannsóknum.
Það þarf víst ekki að minna á að þessi
þýski her er höfuðstoð NATO í Evrópu,
aðalbandamaður Bandaríkjahersins og
að þýskir hershöfðingjar eru livað eftir
annað æðstu menn NATO í Evrópu.
Herveldi Bandaríkjanna
Af hverju þarf auðvald Bandaríkjanna
að hafa um 1000 herstöðvar út um allan
heim? Af hverju hótar hinn voldugi
bandaríski lánadrottinn, Alþjóðabank-
inn, löndum eins og Ítalíu lánabanni og
fjárflótta, ef kommúnistar komist þar í
stjórn? Af hverju lieimta sömu aðilar
niðurskurð á launum verkalýðs — t. d. í
Portúgal, ef þessi lönd eigi að fá lán?
Af því Bandaríkin með 5% íbúa ver-
aldar taka til sín 26% af tekjum alls
mannkyns (sjá Rétt 1977, bls. 266-67) og
vilja umfram allt viðhalda þessari drottn-
un — og á meðan verða þrír af hverjum
fjórum íbúum heims að þola hungur. -
Auðvald Bandaríkjanna óttast þennan
hungraða herskara heims — hefur jafnvel
reynt að myrða þá milljónum saman eins
og í Víetnam - óttast verklýðshreyfingu
heimsins, er stendur með hinni fátæku
alþýðu og er oft hluti hennar — óttast sós-
íalismann, boðskapinn um sigur hinna
fátæku yfir auðvaldi heims — óttast og
hatar sósíalistísku ríkin, af því þau eru
nógu sterk til þess að bjóða auð- og her-
valdi Bandaríkjanna byrginn.
Fyrst eftir stríð hélt bandaríska auð-
valdið að það gæti drottnað yfir öllum
heiminum og fyrirskipað hverri þjóð í
krafti einokunar á atómsprengjunni,
hvaða þjóðskipulag hún skyldi hala. Þá
var NATO myndað. Síðan brást jressi
von, en Bandaríkin héldu áfram að víg-
búast í gríð og erg. - Auk þess að um-
kringja sósíalistísku ríkin herstöðva-
hringnum (sjá kortið), þá komu þau sér
strax á sjötta áratugnum upp 1000 stöðv-
um eldflauga, er drægju heimsálfa á milli
og 656 „Polaris“-eldflaugum, staðsettum
á 41 kjarnorkukafbáti. Og enn var hert á
vígbúnaði þessum á sjöunda áratugnum:
Eldflaugar kjarnorkukafbátanna ná til
staða í 5000 kílómetra fjarlægð - og hver
um sig getur skipst í marga staði með
eyðileggingar- og drápsmátt sinn.
Breskir vísindamenn hafa reiknað út
að fjórar sprengjur, hver mörg „mega-
tonn“, sem varpað væri niður á England,
gætu drepið a. m. k. 20 milljónir manna.
Stríð í Evrópu, þótt „aðeins“ væri háð
með hinum svokölluðu ,taktisku‘ kjarna-
vopnum - en slík kjarnavopn geta verið
10 til 15 sinnum ægilegri en kjarnorku-
sprengjan, er varpað var á Hiroshima
1945 — myndu því gereyða álfuna — og
valalaust breiðast út. Og ef gripið yrði þá
til stórvirkari atómsprengja, yrði mann-
kynið þurrkað út.
Af hverju halda Bandaríkin áfram þess-
um vígbúnaði, sem orðinn er brjálsemi,
er tortímt getur heimsbyggðinni?
Af því auðhringir Bandaríkjanna
grœða ósliaþlega á þessari framleiðslu,
meðan kreppa ríkir á öðrum sviðum.
Á 20 árum hafa Bandarikin eytt tveim
billjónum dollara lil hernaðarþarfa.
Á árinu 1975 seldu t. d. eftirtalin auð-
félög hermálaráðuneytinu (,,Pentagon“)
vopn fyrir eftirtaldar milljónir dollara
66