Réttur - 01.01.1978, Blaðsíða 3
Hin póhtíska niðurstaða
„Það er fráleitt að launafólk kasti
atkvæði sínu á stjórnarflokkana
eftir það sem á undan er gengið“
Samtal „Réttarcc við Benedikt Davíðsson
og Eðvarð Sigurðsson
KaupránsaSgerðir ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa
það í för með sér að launamenn tapa 5—6 vikna kaupi á einu ári: í liðlega einn mán-
uð eiga verkamenn að vinna kauplaust fyrir Geir Hallgrímsson og Ólaf Jóhannesson.
Tekjutrygging aldraðra skerðist um 90.000 kr. á ári, þannig að þeir sem allra erfiðast
eiga verða einnig fyrir árásum ríkisvalds auðstéttarinnar.
I. og 2. mars efndi verkalýðshreyfingin
til víðtækra mótmæla vegna aðgerða rík-
isstjórnarinnar. Þátttaka í aðgerðunum
var geysimikil - um 30.000 manns tóku
þátt í aðgerðunum. Alþýðusamband ís-
lands, Bandalag háskólamanna og Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja stóðu sam-
an að mótmælunum, en ásamt þeim tóku
Bandalag háskólamanna, Farmanna- og
fiskimannasamband íslands og Samband
íslenskra bankamanna þátt í undirbún-
ingi aðgerðanna.
Til þess að fjalla um þessar aðgerðir,
lærdóminn af þeim, horfurnar framund-
an og pólitíska og faglega baráttu verka-
lýðsins ræddi Réttur við Benedikt Da-
víðsson, jormann Sambands bygginga-
manna, og Eðvarð Sigurðsson, formann
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Við-
talið var skráð 17. mars.
Fyrst ræddu þeir um aðgerðirnar 1. og
2. mars:
Benedikt: Það verður ekki annað sagt
en að aðgerðirnar hafi tekist mjög vel og
3