Réttur - 01.01.1978, Blaðsíða 50
Tískusýningarstúlkur.
allt eins vildu draga kraftinn úr hreyf-
ingunni pólitískt séð.
Samkvæmt skoðanakönnunum frá Gall-
up og Harris, styður meiri hluti amer-
ískra kvenna, og reyndar karla líka, öll
meginstefnumið um jafnrétti til handa
konum í þjóðfélaginu. En þegar svo er
látið 1 íta út sem konur verði að ahieita
elskusemi eiginmanns og barna, þá er
þar með verið að fjarlægja meiri Jiluta
kvenna, fæla þær frá.
de Beauvoir: Ég er með á nótunum.
Friedan: Og á sama hátt er að óþörfu
verið að styggja karlmenn eða stilla jreirn
álengdar. En meðal annarra orða, ég
lief verið fegin að verða þess áskynja,
að þér kallið yður nú femínista. Ég þyk-
ist vita, að Jrér hugsið sem svo, að breyt-
ingar á efnahagskerfinu eins og til að
mynda kommúnismi, leiðir ekki sjálf-
krafa til þess, að frelsun kvenna komist í
kring. Hvernig finnst yður vera liáttað
tengslum milli kvennabaráttu og svo
efnahagslegrar og pólitískrar baráttu?
de Beauvoir: Því fer fjarri, að ég haldi,
að kommúnískt eða sósíalískt skipulag
eins og Jrað framkvæmist, sé þarna lausn-
arorðið í sjálfu sér. En ég álít, að mjög
sterk tengsl séu milli efnahagslegrar bar-
áttu og svo hins vegar kvenréttindabar-
áttu, a. m. k. að því leyti, er Frakkland
áhærir.
Ég get nefnt dæmi um verkfall, sem háð
var í Lip úraverksmiðjunum, og jrar
voru 80% verkfallsmanna konur. Verk-
fall þetta stóð í sex mánuði og glæddi
skilning kvennanna á eigin efnahagslegu
og þar með pólitísku valdi. Samt var Jdví
Jiannig farið, að enda Jrótt konurnar væru
sérdeilis virkar í verkfallinu, Jrá kipptu
þær að sér hendinni, ef um var að ræða
t. d. óvæntar vaktir og eiginmönnununr
mislíkaði, að þær sinntu slíkum útköll-
um. Konurnar sögðu þá sem svo: „gott
og vel, við vinnum ærið nóg vegna þessa
verkfalls, þótt við setjum ekki einkalífið
í uppnám að auki.“
Þannig voru Jressar konur, þótt virkar
væru, áfram háðar yfirráðum eiginmann-
anna, og sáu ekki tengslin milli þess arna
og lífsskilyrða kvenna almennt. Franska
kvenréttindahreyfingin á einmitt við
þann stóra vanda að etja hvernig takast
megi að tengja saman efnahagslega bar-
50