Réttur


Réttur - 01.01.1978, Page 47

Réttur - 01.01.1978, Page 47
I bók Betty Friedan „It changed my life“ er að finna alkunn samtöl milli hennar og Páls páfa og Simone de Beauvoir, og þar er frásögn af ferðalagi um Indland í fylgd með Indiru Gandhi á fyrsta ári stjórnartíðar henn- ar. Þá segir frá athurðum á kvennaþingi í Mexíkó í tilefni af alþjóðlegu kvennaári 1975. í bókarlok er opið bréf til kvennahreyfinga á okkar dögum þar sem Betty Friedan grein- ir frá mati sínu á stöðu ýmissa kvenréttinda- hreyfinga um þessar mundir. Hún ræðir hugs- anlegar leiðir til þess að hrjótast út úr þeirri hlindgötu, sem þær hafi ratað í hin síðari ár, hvað við öll verðum að gera til þess að kom- ast úr sporunum áleiðis á næsta stig þeirrar byltingar, er nú hefur staðið um hríð, en er i vanda stödd og staðnar, ef ekki er hafið end- urmat og endurskipulagning. Betty Friedan gerir í bók sinni grein fyrir því, sem á sínum tíma knúði hana til þess að leila fundar við Simone de Beauvoir, höfund bókarinnar „Hitt kynið“. Hún tekur fram, að sú hók hafi haft rík áhrif og varanleg á allan sinn lífsferil og þokað sér áleiðis til þess framlags, er hún hafi megnað að inna af hendi í þá veru að greina og skýra kvenlega tilvist. Það hafi einmitt verið Simone de Beauvoir, sem beindi Betty Friedan inn á þá braut, sem hún hafi síðan gengið og muni enn ganga, þótt torsótt sé. Betty Friedan greinir frá þessum fundi þeirra og dregur saman niðurstöður af við- ræðum þeirra. Er skemmst frá að segja, að ekki lágu margar færar leiðir milli þessara tveggja rithöfunda og forvígiskvenna á sviði kvenréttindabaráttu. Ekki fann Betty Friedan fortakslaust áhrifavald eða þau svör við á- leitnum spurningum, sem hún leitaði og taldi líkur á að finna, einmitt hjá Simone de Beau- voir. Þær greindi á um veigamikil atriði. Betty Friedan sér það glöggt, að kvenna- hreyfing nútímans er stödd á vegamótum. Hún hefur orðið innhverf og athyglin hefur beinzt frá þeim aðkallandi verkefnum að skapa ný viðhorf, opna nýjar leiðir, hreyta ásýnd heimsins. Henni finnst gæta stöðnunar og lítt markvissra aðgerða, sem sízt leiði til breytinga, er máli skipta. Simone de Beauvoir er fyrir sitt leyti ekki viss um réttmæti þess, að konur taki þátt í karlmannabardaganum eins og liann kemur fyrir og upp á alla skilmála karlmannasamfé- lagsins. Hún vefengir það, að ávinningar konu svo sem forfrömun í starfi eða því um líkt séu til fagnaðar, leiði til eins eða neins. Þetta séu aðeins lákn um nokkuð, sem ekki fyrirfinnist í raun. Umfram allt verði þjóðfélagið að hreyt- ast. Betty Friedan vill, að konur hrjótist gegn- um þá múra, sem fyrir þeirn verða, og telur hvern ávinning mikilvægan í því skyni að hreyta viðteknum hugsunarhætti og hefðbund- inni mynd, enda liggi ævinlega að haki raun- sælt mat á öllum aðstæðum, og haráttu sé haldið áfram. Hún vill einnig meta til launa á þjóðfélags- legan mælikvarða þá vinnu, sem konur inna af hendi fyrr og nú til umönnunar barna og til heimilishalds. Það telur Simone de Beauvoir mestu fjarstæðu og færir fram röksemdir af glæsibrag og leikni. Betty Friedan hendir á þær hættur, sem því eru samfara að einangra sig frá stríðandi lífi og veigra sér við því að takast á við pólitísk vandamál í samtímanum, en þeirrar tilhneig- ingar gæti mjög með ýmsum liópum femín- ista. Hún segir m. a.: „Prófsteinninn á hreyf- ingu okkar er sá, hvort hún megnar að opna ný svið, raunverulegt líf, til handa raunveru- legum konum, okkur sjálfum.“ Frásögn hókarinnar „It changed my Iife“, Þáttaskil, er hvorttveggja í senn greinargóð og ágæta læsileg. Höfundurinn, Betty Friedan, er einatt hvassyrt, en ævinlega skemmtileg, og athugasemdir hennar eru hárbeittar. 47

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.