Réttur - 01.08.1980, Page 3
UTRYMIR AUÐVALDIÐ
MANNKYNINU
í BÁLI
KJARNORKUSTRÍÐS?
Eða tekst mannkvnmu að afnema auðvaldsskipulagið
í tíma — og undirbúa sköpun þess sameignarmann-
félags frelsis, frístunda og mannhelgi, sem tækni-
þróunin þegar hefur skapað forsendur fyrir?
Tuttugasta öldin hefur verið grimmasta og blóðugasta öld mannkynssögunnar — og
verður máske hin síðasta, ef hugsandi og vinnandi stéttir ekki stöðva þá helþróun,
sem auðvaldsskipulagið með skefjalausri gróðafíkn og valdagræðgi veldur.
Það, sem af er öldinni, hafa auðmannastéttirnar í tveim heimsstyrjöldum og a. m. k.
103 smærri styrjöldum og skærum valdið dauða 75 milljóna manna og örkumlun 130
milljóna. — Eyðilegging verðmæta, er nema 4800 milljörðum dollara, var afleiðing
þessara illverka.
131