Réttur - 01.08.1980, Blaðsíða 57
FORSENDUR ÞESSA ER: að allir vinnandi og vel hugsandi menn taki
höndum saman um að skapa hér á landi þjóðfélag jafnaðar og sam-
eignar íslendinga á undratækjum tækninnar og samstjórnar lands-
manna á framleiðslu- og efnahagslífinu, og tryggja þannig frelsi og
lýðræði landsmanna á öllum sviðum þjóðlífsins.
ELLA VOFIR YFIR: innrás erlendra auðhringa, er leggja undir sig orku-
auð landsins með aðstoð leppa sinna, — og einokun fárra auðkýfinga
á undratækninni, með aðstoð örfárra hálaunaðra sérfræðinga. Slíkt
myndi skapa einræði fámennrar auðstéttar, útlendrar og innlendrar
í atvinnu- og framleiðslulífinu, — þrældóm nokkurs hluta verkalýðs en
almennt, stöðugt atvinnuleysi fyrir allan fjöldann.
í þessu hefti Réttar eru tvær greinar um örtölvubyltinguna, önnur um sjálfa vísinda-
undirstöðuna, grein Páls Theodórssonar, — hin um virkiieikann, sem þessi örtölvu-
bylting þegar er að skapa, þýddur kafli úr bók André Gorz. Menn sjá strax af þeim
um hvílíka gerbyltingu í mannlegu lífi er að ræða. Það er því nauðsynlegt að við
gerum oss það strax fyllilega Ijóst íslendingar, hvílík gerbylting á þjóðfélagsgrund-
veDlinum hér er á ferð — og ákveðum hvernig við bregðumst við: hvort við ætlum að
hagnýta þessa undratækni í þágu þjóðarheildarinnar, til að skapa þjóð vorri ný, áð-
ur óþekkt lífskjör að gæðum, — eða hvort vér ætlum að láta misnota aila þessa
möguleika til að skapa hér einræði auðvalds, er dæmi þorra þjóðarinnar til vítis at-
vinnuleysisins.
Það hefur i lok þriggja síðustu alda —
að þessari meðtalinni — orðið iðnbylting,
sem gerbreytt hefur framleiðsluöflum
þjóðfélagsins:
I lok 18. aldar varð gufubyltingin, sem
auðvaldið þá hagnýtti í algeru „freisi"
sínu til þess að dæma þá verkamenn, t. d.
vefarana, sem áður höfðu unnið 8 tíma,
við vefstóla sína og komist vel af, til al-
gers atvinnuleysis og neyðar, rneðan
miskunnarlaust auðvaldið þrælaði kon-
um þeirra og börnum út 12—1(5 tíma á
dag fyrir smánarkaup í verksmiðjum og
kolanámum.
I lok 19. aldar kom rafmagnið til sög-
unnar með allri þeirri gerbyltingu, er
jiað olli á öllum sviðum mannlegs lífs.
Og nú í lok 20. aldar gerist stórfeng-
legasta ,,vél“-byltingin af þeim öllum:
örtölvu-byltingin, sem verið hefur í að-
sigi og undirbúningi síðasta aldarljórð-
ung.
185