Réttur


Réttur - 01.08.1980, Síða 17

Réttur - 01.08.1980, Síða 17
ingu, tæki til annars vegar að koma upp- lýsmgum til tölvunnar og að taka við boðum frá henni. Hjá hinum flóknari tölvum getur inntakstækið verið mun stærra takkaborð, leturborð í líkingu við það sem er á ritvélum. Upplýsingarnar geta reyndar komið frá fleiri tækjum eins og t. d. tæki sem les gataræmu eða segul- band, sem geymir töiur og/eða texta. Út- takstækið getur Iíka verið mun stærri skjár en er á vasatölvunum, líkt og sjón- varpsskjár, sem sýnir texta eða töflur og rúmar svipað og ein pappírsörk. Oft er leturborðið og skjárinn byggt saman inn í eitt tæki sem nefnist skjáriti, en skjárit- arnir eru algengustu fylgitæki tölvanna. I stað skjásins, eða frekar auk hans, er rafmagnsritvél eða hraðvirkur prentari oft tengdur tölvunni, en góðir prentarar geta skilað einni blaðsíðu á nokkrum sekúndum. Segulbandstæki geta unnið jafnt inntakstæki sem úttakstæki. Gæsla og stjómun vélrænna kerfa er mikilvægt verkefnasvið örtölva. Örtölvu- kerfin geta dregið stórlega tir þörf fyrir eftirlit með vélunum, þau geta tryggt betri nýtingu eldsneytis eða hráefnis og þau geta gefið aðvörun um yfirvofandí bilun miklu lyrr en hennar yrði vart með hefðbundinni gæslu. í slíkum kerfum eru tæki sem breyta hitastigi, þrýstingi, átaki og fleiru í rafboð, og eru þau tengd við inntakslínur tölvunnar. Við úttaks- línur tölvunnar geta verið tengd aðvör- nnarljós, prentari sem gefur nákvæmar upplýsingar um alla hegðun kerfisins, motorstýrðir lokar og önnur svipuð tól sem stjórna vélinni. Með slíku kerfi er mögulegt að fylgjast með 10, jafnvel 100 sinnum fleiri þáttum, sem gefa upplýs- ingar um eðlilega verkun kerfisins, held- ur en unnt er með mannlegri gæslu. Tölvukerfið telur ekki eltir sér að vinna 24 klukkustundir á sólarhring og verður aldrei þreytt. Það getur hins vegar bilað, eða fengið rangar forsendur, rétt eins og vélgæslumaðunnn. Dæmi um slík vél- gæslukerfi er að finna í íslenskum orku- verum. I vaxandi mæli er þeinr fjarstýrt frá öðrum orkuverum þannig að nú er þar aðeins daggæsla. Svipaða sögu er að segja af skipum. Eltir fimm ár er líklegt að örtölvukerfi fylgist með öllu rafkerfi biíxeiða og eftir tíu ár verði eldavélum á venjulegum heimilum stjórnað á hlið- stæðan hátt. Þá verður skynjara stungið í vatnið í katöflupottinum og öðrum inn í eina kartöfluna og örtölvukerfið gætir þess að skammta nákvæmlega nægilega orku til suðunnar og hættir henni jafn- skjótt og kartöflurnar eru lullsoðnar. Líklegt má telja að orkusparnaðurinn einn greiði örtölvukerfið á einu ári. Og kartöflurnar munu ávallt fá liæfilega suðu. Og lítum svo loks á upplýsingaleitina. Hugsurn okkur að læknir hafi sterkan grun um að sjúklingur, sem hann er að rannsaka, hafi sjaldgæfan sjúkdóm. Hann þarf að fá skjótt upplýsingar um allt hið mikilvægasta, sem vitað er um þennan sjúkdóm, sjúkdómseinkenni og með- höndlun, ekki aðeins það sem stendur í kennslubókum, heldur einnig það sem komið hefur fram í fagtímaritum og skýrslum síðustu ár. Með nútímatækni getur hann sest við skjárita og komist í samband við upplýsingatölvu t. d. á Ítalíu eða í Bandaríkjunum og sótt þang- að fyllstu og nýjustu upplýsingar um við- komandi sjúkdóm og fengið þær prent- aðar með tölvuprentara. Þessar upplýs- ingar koma í gegnum venjulega símalínu. Tækni senr þessi er þegar í notkun hér á 145

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.