Réttur - 01.08.1980, Síða 61
DRAUMSJON KARLS MARX
Andrc Gorz vitnar í Marx í bókakafla þeini, sem
þýddur cr hér að framan, cr Marx segir 1857:
„Srí timi er kominn aS mennirnir geta ehlii unnið
tneir en þuð, sem vélarnar geta gert“. Á hann þá
við iivað vinnu snertir og boðar þar með að auð-
valdsskipulagið myndi óhjákvæmilega leiða lil af-
náms vinnunnar — sem aftur yrði auðvaldsskipu-
laginu að aldurtila.
Marx rcit þctta á þeim árum, sem hann átti við
sárasta fátækt og sjúkdóma að stríða. Einmitt á
þessum árum ritar hann „uppkastið", sem hann
kallar svo: „Grundrisse",1 frumdrög að gagnrýni
hinnar pólitísku hagfræði".
Þar er ekki aðeins að l'inna frumdrögin að höfuð-
riti hans „Auðmagninu", sem honum tókst sjálfum
ekki að ganga fyllilega frá öllu, — heldur og hug-
myndir, sem hann gafst aldrei tími (il að sinna
nánar.
Hann ræðir livernig þróunin liljóti að verða sú
að vfsindin öll verði framleiðsluafl (bls. 591) og það
leiði til þess að maðurinn sjálfur vinni ekki, en
verði fyrst og fremst stjórnandi og gæslumaður
framleiðsluferlisins (bls. 592).
,,í þessari gerbreytingu verður það hvorki vinnan
sjálf, sem maðurinn innir af hendi né tíminn, sem
hann vinnur, er verða hin mikla undirstaða og upp-
spretta framleiðslunnar og auðæfanna, heldur hitl
að maðurinn ræður hinu almenna framleiðsluafli,
er hann á sjálfur, skilur náttúruna til hlftar og
drottnar yfir henni sent þjóðfélagsafl, — í stuttu
máli sagt þróun hins þjóðfélagslega einstaklings. —
Sá þjófnaður á vinnutíma annara, sem núverandi
auðæfi byggjast á, virðist aumur grundvöllur í sam-
anburði við þann grundvöll, sem þróaður verður
einmitt af hituim mikla iðnaði sjálfum." — Yfir-
vinna fjöldans (Marx meinar: hin óborgaða, er auð-
valdið rænir) hefur þá hætt að vera skilyrði fyrir
myndun auðæfanna, alveg eins og hitt að örfdir
menn vinni eliki hættir að vera skilyrði fyrir þróun
þess alhliða máttar, er í mannlegum heila býr.“ —
(Bls. 593).
Marx lýsir þvf síðan hvernig hin frjálsa þróun
áíuinmuuifHfríM?n ^artci
pr$lrtari<r ianfcrr tuwiuigt <a<».
«*♦*»««** ía rtr»,« Ki -#íi)i*t*»®»ínui^ii Ui
I. t.
('ýyþvýýíy
Fyrsta útgáfa Kommúnistaávarpsins.
einstaklinganna verði möguleg með þvf að hin nauð-
synlega vinna í þjóðfélaginu verði í algeru lág-
marki og þannig skapist skilyrðin fyrir listræna,
vfsindalega og aðra menntun einstaklinganna, af
])ví þeir hafa nú allir svona inikinii frftfma og öll
þau skilyrði, sem þarf til að njóta hans. (Bls. 593).
Allar þessar liugmyndir Marx, sem hann setur
fram í uppkastsformi í þessum „frumdrögum" eru
nú að verða að veruleika hvað þróun framleiöslu-
aflanna snertir. I'að sanna hinar gerbyltandi vfs-
189