Réttur - 01.01.1983, Side 44
En tími Guðmundar var annar. Hann
var sonur fátækra hjóna, hann var einn af
þeim greindu og gáfuðu unglingum, sem
stóð á sínum mótunarárum frammi fyrir
atvinnuleysi, og fátækt og frammi fyrir
takmörkuðum réttindum þeirra, sem ým-
ist strituðu við landbúnað, fiskveiðar eða
við verkamannavinnu.
Hlutskipti Guðmundar var ekki lang-
skólamenntun. En hann fékk eigi að síður
góða undirstöðumenntun. Hann sótti
unglingaskóla og nam af þeim sem lengra
voru komnir, og svo var hann sem ungur
maður strax kominn í skóla lífsins, og
lærði á umhverfið og mannlífið, og lærði
að mennta sig sjálfur.
Guðmundur Vigfússon var góður full-
trúi sinnar kynslóðar. Hann var einn af
þeim sem kallaður var sjálfmenntaður.
Hann var við sín verkalok í rauninni
gagnmenntaður maður; fróður um flesta
hluti, víðlesinn og maður með skarpa
dómgreind.
Guðmundur Vigfússon var eins og
kunnugt er einn af kunnustu forystu-
mönnum íslenskra sósíalista um langt
árabil.
Kunnastur var hann eflaust, sem for-
ystumaður sósíalista í borgarstjórn
Reykjavíkur, en þar var hann fulltrúi frá
1950 til 1970, eða í full 20 ár. Guðmundur
var í borgarráði Reykjavíkur 1952 til 1970
og varamaður áður í tvö ár.
Á þessum árum hafði Guðmundur mik-
il áhrif á rekstur borgarinnar og gífurleg
áhrif á samskipti fjölda borgarbúa við
stofnanir borgarinnar. Guðmundur hafði
ekki aðstöðu í borgarstjórn sem meiri-
hlutamaður, en þrátt fyrir það hafði hann
sín miklu áhrif. Guðmundur var þannig
maður að með honum var gott að vinna.
Hann var tillögugóður, skýr og rökfastur
og af þeim ástæðum hafði hann oft meiri
áhrif en búast mátti við vegna pólitískrar
stöðu sinnar.
Enginn vafi leikur heldur á, að Guð-
mundur nýtur almennrar viðurkenningar
þeirra sem með honum unnu m.a. í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Starf Guðmundar að borgarmálefnum
Reykjavíkur var mikið og vissulega er
ástæða til að minnast þess. En ekki er
síður ástæða til að minnast nú við leiðar-
lok, þess mikla og góða starfs, sem Guð-
mundur innti af hendi í þágu pólitískra
samtaka okkar sósíalista og í þágu verka-
lýðssamtakanna.
Guðmundur var erindreki Alþýðusam-
bands íslands 1943-1948 og ferðaðist þá
um allt land, hélt fundi og aðstoðaði
verkalýðsfélög.
Hann var skrifstofustjóri fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík 1948-50,
mætti á Alþýðusambandsþingum og var í
fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík í mörg ár.
Guðmundur Vigfússon var því einn af
þeim, sem vann ósleitilega í mörg ár að
því að treysta skipulag verkalýðshreyf-
ingarinnar og að því að þoka áfram
hagsmunamálum verkafólks og sjó-
manna.
Guðmundur var í stjórn Sambands
ungra kommúnista 1934-38, í stjórn
Æskulýðsfylkingarinnar og síðar varð
hann fulltrúi í miðstjórn Sósíalistaflokks-
ins og í framkvæmdanefnd flokksins í yfir
20 ár.
Guðmundur Vigfússon var í fremstu
röð þeirra, sem stóðu að stofnun Al-
þýðubandalagsins fyrst sem kosningasam-
taka 1956 og síðar að því að stofna
Alþýðubandalagið sem formlegan stjórn-
málaflokk árið 1968.
44